Söfnun hefur nú verið hrundið af stað fyrir Katrínu Lilju sem er rúmlega þriggja mánaða gömul og berst fyrir lífi sínu. Foreldrar hennar hafa þurft að vera uppi á spítala nánast allan sólarhringinn og þaurfa þau á öllum stuðningi að halda sem hægt er að fá. Endilega gefið ykkur tíma í lesninguna um litlu hetjuna.
Katrín Lilja fæddist 20. október 2011 eftir 37 vikna meðgöngu. Hún var lögð inn á vökudeild og þar voru gerðar margar rannsóknir en Katrín Lilja hefur frá fæðingu verið með of háan blóðþrýsting, hátt aldosterone og marmoreruð (með óeðlilegan húðlit vegna óeðlilegs blóðflæðis til húðar). Allt annað reyndist eðlilegt.
28. október útskrifaðist hún en þó undir eftirliti. 1. nóvember fékk hún sitt fyrsta „kast“ (hún verður mjög veik og þarf súrefni) og lagðist inná nýburagjörgæslu. Aftur komu rannsóknir eðlilega út. Eftir 5 vikna dvöl útskrifaðist hún aftur en ennþá undir eftirliti.
17. desember fékk hún aftur kast og lagðist aftur inn á nýburagjörgæslu í öndunarvél. Enn og aftur komu rannsóknir eðlilega út fyrir utan það að á hjartanu sást að blóðþrýstingurinn var farinn að hafa áhrif.
30. des – 4. janúar fékk hún tæplega 30 köst, sum væg en önnur alvarlegri. En þegar hún var svo orðin nægilega stöðug var hún flutt á almenna barnadeild.
4. febrúar fékk hún aftur kast sem var mun alvarlegra en þau sem hún hafði fengið áður. Þann 5. febrúar versnaði ástandið enn meira.
Núna er henni haldið sofandi í öndunarvél þar sem hún berst fyrir lífi sínu. Undanfarnir dagar hafa verið henni mjög erfiðir og þann 5. febrúar komust læknarnir að því að hún er með lungnaháþrýsting en það hafði aldrei áður sést í rannsóknum.
Ætlunin er að flytja hana til Svíþjóðar í þeirri von um að hægt verði að finna greiningu. Þetta mál er mjög sérstakt því að þrátt fyrir að það sé augljóslega eitthvað að þá hefur ekki verið hægt að greina hvað það er.
Katrín Lilja hefur náð að verða mjög stöðug á milli kasta og hefur þroskast og stækkað eðlilega enda er hún mikil hetja.
Foreldrar hennar eru þau Lilja Helgadóttir og Hörður Reynir Þórðarson. Fyrir eiga þau rúmlega tveggja ára stúlku. Eins og gefur að skilja er þetta gríðarlegt álag á fjölskyldu Katrínar Lilju. Foreldrar hennar hafa þurft að vera uppi á spítala nánast allan sólarhringinn.
Nú eru framundan óvissu tímar hjá fjölskyldunni og ferðalag sem þarfnast kostnaðar og viljum við koma af stað söfnun fyrir þessa duglegu fjölskyldu sem hefur átt gríðarlega erfiða tíma.
Margt smátt gerir eitt stórt og vonum við að allir þeir sem vettlingi geta valdið leggi sitt af mörkum til að létta undir með þessum hetjum.
Viljir þú leggja fjölskyldunni lið þá er reikningsnúmerið 0332-26-060901 og kennitala 050584-2409. Facebooksíða söfnunarinnar




















