„Það væri rosa gaman, svona einu sinni,“ segir Magni í gríni með félögum sínum, en þeir keppa nú til úrslita um hvort þeir komist áfram í keppnina sem haldin verður í Aserbajan í ár. Keppnin verður haldin laugardaginn 11. febrúar og bíða strákarnir spenntir eftir því að stíga á svið.
Sveinn Rúnar Sigurðsson, sem átt hefur 2 lög sem farið hafa erlendis fyrir Íslands hönd og 10 lög alls í íslensku keppninni samdi lagið Hugarró sem kemur ábyggilega til með að snerta hjörtu margra í kvöld. Bleikt kíkti á Kex Hostel og tók púlsinn á þessum hressu drengjum.




















