Tónleikaröðin Söngfuglar halda áfram göngu sinni í Salnum, Kópavogi næstkomandi miðvikudag, þann 1.febrúar kl.20. Flutt verða þekkt og minna þekkt sönglög Sigrúnar Jónsdóttur og Ragnars Bjarnasonar ásamt hljómsveit.
Flytjendur eru Jana María Guðmundsdóttir ásamt hljómsveit en fær til sín góða gesti, söngvarana Bjarna Snæbjörnsson, Eyþór Inga Gunnlaugsson, Orra Huginn Ágústsson og Thelmu Hrönn Sigurdórsdóttur.
Sigrún Jónsdóttir átti miklum vinsældum að fagna á sjötta og sjöunda áratugnum, fyrst sem ein fimm söngkvenna í Öskubuskunum og síðar sem söngkona með KK-sextettnum ásamt Ragnari Bjarnasyni.Sigrún gerði lög á borð við Fjórir kátir þrestir, Ljúfa vina, Luktar-Gvendur og Seztu hérna hjá mér geysilega vinsæl.
Ragnar Bjarnason þarf vart að kynna enda einn okkar ástsælasti söngvari þjóðarinnar í hartnær 50 ár. Hann hóf ferilinn leikandi á trommusett en fljótt uppgötvaðist falleg söngrödd þegar hann þurfti að hlaupa í skarðið fyrir KK eitt kvöldið og hefur ekki vikið af sviðinu síðan.
Þau eru óteljandi lögin sem eru orðin sígild í meðförum hans, lög eins og Vorkvöld í Reykjavík, Flottur jakki, Er líða fer að jólum, Komdu í kvöld, Barn, Kenndu mér að kyssa rétt svo fáein séu nefnd.
Notalegt ferðalag aftur til fortíðar í tali og tónum!
Tónleikarnir hefjast kl.20 og miðaverð er 2500 kr -miðasala er ásalurinn.isogmidi.is




















