Eftirfarandi grein barst frá kattavinum:
Flestir hlakka til áramótanna og að horfa á himininn lýsast upp af flugeldum í ótal litum. Þetta á þó sjaldan við um dýr, sem oft verða skelfingu lostin. Það er í eðli dýra að hræðast hávaða, reyk og eld og forðast ætti eftir fremsta mætti að hafa dýr laus í eða nálægt þéttbýli á gamlárskvöld.
Lokaðir gluggar, ljós á heimilinu
Þetta er kvöldið sem loka á dýrin inni, hafa alla glugga lokaða, gardínur dregnar fyrir og daufa ljósbirtu á heimilinu.Þá er gott að hafa útvarp eða með fallegri tónlist lágt stillt. Kettir kjósa yfirleitt að vera einir og í felum. Það er til dæmis gott ráð að útbúa fataskáp sem hvíldarstað fyrir kisu, raða fatnaði þannig að kisa geti lagst á mjúka peysu og heyrt eins lítið og mögulegt er í flugeldunum.
Hægt að fá lyktarhormón sem draga úr streitu og kvíða
Á heimasíðu Dýralæknamiðstöðvarinnar í Grafarholti er að finna mjög góðar leiðbeiningar frá Sif Traustadóttur, dýralækni um hvernig búa skuli að gæludýrum á gamlárskvöld þar sem Sif skrifar meðal annars:
„Kettir vilja vanalega fela sig í dimmri holu og koma þaðan aftur þegar “hættan” er yfirstaðin.. Ef þetta eru fyrstu áramótin hjá dýrinu þínu er mikilvægt að minnka líkur á neikvæðri reynslu. Kettir eiga ekki að fara út á gamlársdag, nýársdag eða þrettándanum. Mikilvægt er að útbúa skot þar sem dýrið getur leitað skjóls. Hugsið um hvert dýrið hefur leitað áður þegar það var hrætt, algengt er að það sé inni í herbergi fyrir miðju hússins eða þar sem einhver nákominn dýrinu sefur. Ef til vill er hægt að útbúa skot í búri, stórum kassa eða breiða dúk yfir borð eða rúm svo þar myndist dimm hola.Ef þú heldur að lyf geti hjálpað dýrinu þínu þarftu að tala tímanlega við dýralækninn þinn og ræða hvaða lyf geti hjálpað.Við mælum ekki með því að dýrum séu gefin lyf á fyrstu áramótunum. Annað sem hefur gefið mjög góða raun eru ferómón eða lyktarhormón (DAP fyrir hunda og Feliway fyrir ketti). Þau fást án lyfseðils hjá dýralæknum og best er að fá úðakló sem stungið er í innstungu og dreifist þá efnið um íbúðina, en mannfólkið finnur enga lykt af þessu. Þessi efni draga úr streitu og kvíða hjá dýrunum, en engin hætta er á aukaverkunum.”
Skjótið ekki upp flugeldum í tíma og ótíma!
Kattareigendum er bent á að hafa samband við dýralækni sinn og fá ráðleggingar vegna þeirra katta sem af fyrri reynslu má reikna með að verði hrædd um áramótin. Þá er þeim vinsamlegu tilmælum beint til almennings að skjóta ekki upp flugeldum nema á þeim dögum sem reikna má með þeim eins og á gamlársdag, nýársdag og þrettándanum og gefa dýraeigendum þar með tíma til að gera viðeigandi ráðstafanir vegna dýra sinna.




















