Rachel Prince þjáist af sjaldgæfu ofnæmi fyrir vatni sem þýðir að hún getur ekki kysst kærastann sinn, farið í sund eða fengið sér vatnsglas.
Ef Rachel kemst í tæri við vatn bólgnar hálsinn á henni upp og hún verður öll rauð á bringunni og andliti. Fyrirbærið sem kallað er aquagenic urticaria, veldur því að nokkrir dropar af munnvatni kærastans lætur hana bólgna upp.
Rachel segir að þetta hindri hana ekki þar sem hún vilji nánd með kærastanum. „Ef Lee svo mikið sem kyssir mig á kinnina þarf ég að þurrka kinnina áður en ég bólgna upp. Það er vissulega leiðinlegt að geta ekki notið kossa en Lee bætir mér það upp með því að vera hugulsamur og kaupir handa mér litlar gjafir.“
Ofnæmið er þó ekki alslæmt þar sem Rachel sleppur við að sjá um uppvaskið og þvottinn. Hún segir þau langa í börn en þau þurfi að hugsa sig vel um og gera alls kyns ráðstafanir.
Aquagenic Urticaria lýsir sér þannig að sá sem þjáist af því má ekki komast í tæri við blóð, svita eða tár, því þá brýst bólga og roði út á svæðinu sem kemst í snertingu við það. Læknar segja að histamín losni ekki við snertingu við efnin en húðin er afar viðkvæm gagnvart þessum efnum.
Kvillinn er afar sjaldgæfur en um 35 manneskjur þjást af honum í öllum heiminum. Það er engin lækning, en sá sem þjáist af honum þarf að forðast vatn eins og hægt er. Einstaklingurinn þarf að taka stuttar sturtur, hitna ekki um of og forðast rigningu.
Rachel Prince kynntist Lee Warwick á stefnumótasíðu á Valentínusardag árið 2007. Dagurinn á sérstakan stað í hjarta beggja þar sem Warwick bað hennar einnig sama dag nokkrum árum seinna. Þegar þau ganga upp að altarinu mun þó ekki verða um koss að ræða, „bara smá snerting varanna, ef þá það.“
Kærastinn segir: „Stundum horfi ég á hana og langar ofboðslega að kyssa hana, en ég veit ég get það ekki. Ég verð oft leiður á þessu. Ég þarf að gera megnið af húsverkunum, svo ég er í rauninni þrællinn hennar og fæ ekki einu sinni koss þegar ég er búinn!“
Ofnæmið er það sjaldgæft að fólk hefur ekki heyrt um það áður og fær Rachel oft skrýtin viðbrögð frá fólki.„Fólk verður mjög tortryggið eða trúir mér ekki. Það hefur enginn heyrt um þetta. Ég hef meira að segja fengið það frá læknum að ekki sé hægt að vera með ofnæmi fyrir vatni. En ég þekki sjálfa mig og veit hvað þetta er – mér er sama hverju fólk trúir,“ segir hún.
„Fólk spyr mig: „Hvernig þrífur þú þig?“ Svarið er einfalt, ég fer í bað í nokkrar mínútur og þegar ég er búin klæjar mig mikið og það er ótrúlega sársaukafullt. Ég þarf að leggjast niður eftir bað í einhvern tíma og það er mjög þreytandi.“

Rachel er með regnhlíf á sér öllum stundum ef hún fer út. „Þegar ég fer út er ég með risastóra hettu eins og Kenny í South Park, bara til öryggis, ef það skyldi rigna.“




















