Margar af fegurstu konum kvimmyndasögunnar hafa skartað ljósum lokkum gegnum árin og sú mýta að karlmenn séu alveg óðir í platínulokka er ansi lífseig. En þó ljóskugoðsögnin sé lífseig, hefur ný rannsókn nú sýnt fram á að það er sáralítið til í þjóðsögunni.
Rannsóknin var framkvæmd á vegum samskiptasíðunnar Badoo og náði til 2000 karlmanna, sem voru allir inntir þess hvað þeim þætti mest aðlaðandi í fari kvenna.
Og niðurstöðurnar koma skemmtilega á óvart, en öfugt við það sem flestir töldu; að karlmenn væru óðir í ljóshærðar, grannvaxnar konur, sögðust 60% þáttakenda taka dökkhærðar gyðjur fram yfir ljóshærðar kynsystur þeirra.
Þriðjungur þáttakenda, eða 33.1% – sögðust laðast mest að dökkhærðum konum en 28.6% voru hugfangnir af konum með svart hár. Það munu vera 59.7% allra þáttakenda, sem sögðust laðast að konum með dökka lokka.
Þeir karlmenn sem laðast að gylltum litatónum og ljóshærðum konum námu einungis 29.5% af þeim sem svöruðu, en 8.8% karlmanna sögðust heillaðir af rauðhærðum konum.
Og gleðin heldur áfram, en niðurstöðurnar eru einnig hvetjandi fyrir konur með bogadregnar línur sem eru í stöðugri glímu við vigtina í þeirri misskildu von að karlar kunni betur að meta konur sem eru í litlum holdum.
Stærstur hluti svarenda, eða 38.8% karlmanna, sögðust fremur kjósa eðlilega vaxnar konur sem nota fatastærð á bilinu 12 – 14, en um 10% karlanna vildu konu sem notar fatastærð á bilinu 6 – 8.
Konur sem klæðast fatnaði sem dregur fram kvenlegar línur þeirra og nota fatastærðir á bilinu 14 – 18 höfnuðu í öðru sæti á vinsældarlista karlpeningsins – sem er í hrópandi ósamræmi við þá mynd sem tímarit varpa gjarna upp af grannvöxnum fyrirsætum; karlar á meginlandi Evrópu segjast fremur kjósa þrýstinn og kvenlegan vöxt.
En karlarnir draga þó línuna. Of þéttholda konur falla ekki í kramið hjá karlpeningnum og þannig sögðust einungis 4.2% þáttakenda hafa áhuga á konum sem nota stærð 18 og uppúr.
Ótrúlegt en satt, þegar kemur að augnlit vék dökki tónninn fyrir björtu yfirliti, en 40.2% karlanna sögðust laðast mest að konum með bláan augnlit. 29.2% svarenda sögðu brún augu vera fallegust, 17.5% kusu konur með græn augu og 13.1% voru algerlega heillaðir af móleitum augnlit.
Rannsóknin, sem var framkvæmd í Bretlandi, var einnig samkeyrð á vefsíðu Badoo í Frakklandi, Spáni, Ítalíu, Bandaríkjunum og Brasilíu samtímis og niðurstöðurnar komu jafn mikið á óvart, sama hvert er litið, en karlmennirnir sem tóku þátt voru nokkuð samstíga í áliti sínu, óháð því hvar þeir búa á hnettinum.
Einungis franskir karlmenn sögðust kjósa grannvaxnar konur, meðan karlar á öllum öðrum landsvæðum sögðust kjósa íturvaxnar og kvenlegar konur sem nota fatastærð á bilinu 12 – 14.
Það sem vekur mesta furðu er að ekkert þeirra landsvæða sem varð fyrir valinu, kaus ljóshærðar konur fram yfir dökkhærðar og svarthærðar konur þóttu mest aðlaðandi á öllu meginlandi Evrópu og Bandaríkjunum einnig, að undanskildum Bretlandseyjum, en þar kjósa karlar kastaníubrúna lokka og taka dökkhærðar konur fram fyrir konur með annan háralit.




















