Konur „stela“ ekki mönnum!
12.12.2011 Aðsendar greinar

Ég get ekki orða bundist lengur og verð að tjá mig til kynsystra minna. Ég vildi óska að vitundarvakning yrði hjá konum sem hafa lent í slæmri reynslu af hendi kærasta eða eiginmanns sem hefur horfið í faðm annarrar konu.

Þessi kona sem þeir fóru til „stal“ honum ekki! Ég horfi á vinkonur mínar hata „þessa konu“ af lífi og sál og vinkonurnar taka undir hvers konar helv*** dr**** þessi vonda kona sé. „Stelur bara manninum frá mér!“

Ég hef horft upp á vinkonur mínar hella glasi yfir „vondu konuna“ á skemmtistað – af því að hún eyðilagði sambandið þeirra. Kona sem hefur kannski enga hugmynd um hvað gerðist.

Sorry, þetta er ekki svona. Ég þori að fullyrða að í 95% tilfella er þetta ekki svo. Ég stunda ekki þennan leik sjálf en get ekki annað séð en að þetta sé sjaldnast konunni að kenna. Þetta er manninum að kenna og engum öðrum.

Ef þú áttir mann sem gerði slíkt var það af þeirri einföldu ástæðu að samband ykkar stóð ekki á nægilega traustum fótum. Eitthvað vantaði upp á ástina, maðurinn var eitthvað laus í rásinni. Ef þessi kona hefði „stolið“ honum, af hverju gast þú þá ekki „stolið“ honum til baka? Þetta gengur ekki svona fyrir sig.

Reyndu að bera ekki kala til þessarar konu. Verum sanngjarnar við hvor aðra. Þú veist t.d. ekkert hvað hann hefur sagt henni. Hann gæti hafa sagt henni að þið væruð hætt saman, þú værir svona eða hinsegin eða guð-má-vita-hvað. Sennilega færðu aldrei að vita það og þú ættir ekki að vera vond út í hana. (Það er að sjálfsögðu annað mál ef þið þekkist, ég er ekki að tala um svoleiðis dæmi)

Ef þú áttir mann eða kærasta sem fór frá þér fyrir aðra konu, ekki vera reið út í hana. Ekki vera reið yfir höfuð ef þú getur. Vertu fegin að sjá hverskonar mann þú varst að hitta, vonandi var það fyrr en seinna. Taktu þessari erfiðu reynslu með opnum huga og ef/þegar þú ferð í samband aftur veistu að hverju þú ert að leita og vonandi finnur þú mann sem er þess virði að fá að hitta þig.

Ritstjórn
23.5.2012

Sjóðheit prófílmynd?

se lil

Ekki kannski alveg eins og hún hafði hugsað sér hana….  

Ritstjórn
23.5.2012

Hver ætli ráði á þessu heimili?

raedur l

Þú þarft bara að líta einu sinni á myndina til að sjá það…!  

Ritstjórn
23.5.2012

Rúmfræði: Level 900

rumfr lil

Hvernig…? Bara – HVERNIG?  

Ritstjórn
23.5.2012

Mörgæsaungi vs maður

mörgæs

Hversu mikið krútt getur maður verið? Þessi litli mörgæsaungi var ekkert hræddur við að ráðast á manninn og setjast hreinlega á andlitið á honum.

Sigurveig
23.5.2012

Síðbúinn „mæðradagsbröns”

bröns

Snilldin ein frá matgæðingnum Sigurveigu Káradóttur!   Pönnuklessur: 200 gr spelt 25 gr hveitikím 25 gr hveitiklíð 2 tsk lyftiduft 50 gr hunang 200 gr eplamauk 2 egg 2 msk kókosolía – brædd á pönnu ( og svo meiri kókosolía til að steikja úr ) Þurrefnin sett saman í skál og restinni síðan blandað saman [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Uppfærðu Angry Birds

angrybirdsforsida

Það hafa flestir spilað leikinn sem en fæstir láta sig dreyma um að falla niður með þessum reiðu fuglum eða þjóta á meðal þeirra í hringekjum. Nú hafa leikjahönnuðir Angry Birds hinsvegar uppfært leikinn og fært hann inn í raunveruleikann með tilkomu skemmtigarðar sem er að sjálfsögðu tileinkaður fuglunum og óvinum þeirra. Skemmtigarðinn er að [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Mansal er algengara en við höldum: Óhugnanlegir þættir frá BBC

mansal forsida

Við höfum einstakan hæfileika til að loka augunum fyrir því hræðilega sem á sér stað á degi hverjum í heiminum. Mansal er eitt af þeim atriðum. Við lesum um mansal í bókum og dagblöðum, sjáum heimildarmyndir og vitum að það tíðkast um heim allan en það er erfitt að setja sig í spor þessa heims [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Eurovision: 1500 sinnum #12stig á Twitter

tvit

„Tíst Íslendinga voru fyndnari en breski þulurinn,“Gísli Marteinn, lögreglustjórinn í Reykjavík og forstjóri CCP meðal þeirra sem lögðu orð í belg. Mjög líflegar umræður sköpuðust um söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöða á vefsíðunni Twitter.com í kvöld. Bæði í Evrópu allri en íslenskir notendur vefsíðunnar hafa líklega aldrei verið jafn virkir í umræðunum um Eurovision.  1500 íslensk tíst [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ísland kemst áfram í Eurovision!

gretajonsi

Þau Gréta Salóme og Jónsi voru stórkostleg á sviðinu og ef marka má kosningarnar heilluðu þau ekki bara landann heldur einnig Evrópu en framlag okkar Íslendinga mun keppa í aðalkeppninni næstkomandi laugardag. Gréta og Jónsi voru númer tvö á sviðið og var atriðið þeirra svo sannarlega vel útfært. Blái liturinn á sviðinu fór laginu einstaklega [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Komast Gréta og Jónsi upp úr undanúrslitakeppninni í kvöld?

eurovision

Í kvöld munu Eurovisionfararnir okkar stíga á stóra sviðið Kristalhöllinni í Bakú og flytja framlag okkar Íslendinga til Eurovisions í ár. Þau Gréta og Jónsi munu keppa ásamt 18 öðrum löndum um þau 10 sæti sem fá að taka þátt í  undanúrslitakeppninni en löndin eru í þessari röð: Svartfjallaland: Rambo Amadeus – Euro Neuri Ísland: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ömmustig – Gamlar og krumpaðar konur á sviðinu

euro1

Eins og flestir Eurovision aðdáendur vita þá er það ekki aðeins flutningurinn á laginu sem skiptir máli heldur öll umgjörðin. Því hafa margir Eurovision áhagendur hafa tekið upp einskonar stigagjöf og fylgir sumum þeirra ansi hávær köll, skotglas og jafnvel gretta ef innihald skotglassins var bragðsterkt. En fyrir hvað á að gefa stig? Bleikt rakst [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Grillaður lax með teriyaki

lax

Sjúklega girnilegur og sumarlegur réttur fyrir þá sem veiða/þekkja veiðimenn! Mmm….grill og lax. Verður það eitthvað betra?     Fyrir 4. Innihald: 600 gr. lax, roð- og beinlaus 4 stk. Blue Dragon eggjanúðlur (200 gr.) 400 gr.wok grænmeti, ferskt eða frosið 165 ml. Blue Dragon kókosmjólk 1 stk. Blue Dragon Teriyaki Stir Fry sósa Aðferð: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Green Tea Smoothie

green tea

Nú er sumarið komið og stefnir í tveggja stiga hitatölur um helgina.  Við mælum með þessum, sem ferskur og sumarlegur með hækkandi hitastigi um allt land.   Innihald 1 frosinn banani. ½ stór hunangsmelóna, skorin í bita. ¾ úr bolla af Green Tea (notið 2 tepoka og látið standa í 10 mín ) 1 tsk. hunang. ¼ [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Er hægt að komast yfir köngulóarfóbíu?

konguloarfobia

Köngulær eru ekki öllum að skapi. Þær eru alveg fallegar..sumar en geta valdið ógurlegri hræðslu hjá fólki og stundum fylgja öskur á háa c-inu með. Ef þú ert ein/n af þeim sem þolir ekki köngulær eru þetta kannski góðar fréttir fyrir þig: Nýleg rannsókn sýnir að hægt er að breyta köngulóarfóbísku fólki í köngulóarþolendur eftir [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ekkert Eurovision í Albaníu: Þjóðin syrgir háskólanema

rutuslys

Skelfilegt slys átti sér stað í Albaníu þegar rúta, full af háskólanemum, féll 150 metra niður í stórt gljúfur nálægt borginni Himara eða um 136 km suður af höfuðborginni Tirana. Staðfest er að 12 manns hafi látið lífið og eru 25 alvarlega slasaðir. 49 kvenkynsnemendur voru í rútunni ásamt rútubílstjóranum sem virðist hafa reynt að [...]