Kvennahljómsveit Önnu Maríu vann dönsku tónlistarverðlaunin 2011
01.02.2012 Ritstjórn

„Við vorum eiginlega alveg orðlausar að vinna þessi verðlaun sem gerist nú ekki oft í níu kvennahópi,“ segir Anna María Björnsdóttir, 25 ára íslensk stelpa úr Garðabænum en hljómsveit hennar IKI vann dönsku tónlistarverðlaunin 2011.

tonlist long

Söngkonurnar níu

„Þetta er okkur mjög mikill heiður og hvetur okkur að halda áfram á sömu braut. Platan sem vann til verðlaunanna var tekin upp á þremur dögum en við spunnum tónlist alla þá daga og völdum svo uppáhaldslögin okkar frá þessum upptökum til að hafa á plötunni.“

Anna María á ekki langt að sækja tónlistarhæfileikana en hún kemur úr tónelskri fjölskyldu og spila foreldrar hennar meðal annars á harmonikku og sög. Anna María spilar þó sjálf á píanó en aðspurð kveðst hún glamra á harmonikk og gítar.

„Við erum 9 söngkonur og komum frá 4 Norðurlöndum. Öll tónlist og allur texti er spunnin á staðnum. Hlutverk okkar eru mismunandi en við tökum allar sóló, syngjum sem hluti af hljómsveit, eða kór, í dúettum, tríóum, kvartettum, kvintettum o.s.frv. en líka einradda allar saman. Hlutverkin eru síbreytileg en hver og ein kemur með sína rödd, sinn uppruna, þekkingu og söngstíl í hljómsveitina.

Ég kem því með íslenskuna og minn uppruna. Við erum með heimspeki í hljómsveitinni sem byggir mest á því að vera í núinu. Það krefst gríðarlegrar einbeitingar að spinna tónlist í hóp þar sem þú hefur aðeins þína rödd, þín eyru og þitt innsæi til að vinna með og skapa tónlist. Það eru engar reglur eða rammar til að fylgja og engin ein sem stjórnar, þú veist því aldrei hvað gerist næst!

Það er nánast ómögulegt að gera þetta einlægt og án tilgerðar ef hugurinn er að trufla mann með hugsunum en tónlistin verður að okkar mati best þegar allar ná þessari núvist og tónlistin flæðir eðlilega. Það er líka gaman að sjá hversu mikil áhrif hver og ein hefur á hvernig tónlistin verður hverju sinni.“

Það er ekki aðeins stefna hljómsveitarinnar að lifa í núinu en Anna María aðhyllist einnig þeirri speki og les sér mikið til um nýaldarheimsspeki.


Ég hef lesið margar bækur um þessa hluti og mínar uppáhalds bækur eru „Mátturinn í Núinu“ og „Ný Jörð“ eftir Eckhart Tolle. Bækurnar fjalla mest um það að lifa í núinu, því það er það eina sem nokkurn tímann er. Fortíðin er liðin, ekkert sem hægt er að gera til að breyta henni þó hægt sé að læra af henni og framtíðin kemur aldrei til manns sem framtíðin heldur aðeins sem hin líðandi stund. Það er því núið, akkúrat núna sem er það eina sem nokkurn tímann er. Þetta er mjög einföld speki en manni hættir svo oft til að lifa annaðhvort í fortíðinni eða framtíðinni.“

Anna María er stödd á Íslandi um þessar mundir en hún er að taka upp sína fyrstu sólóplötu.

„Þetta er tónlist sem ég hef samið á síðustu tveimur árum. Ljóðin eru öll eftir íslensk skáld, flest íkringum 100 ára gömul. Tónlistin er svolítið þjóðleg en með popp-jazz keimi.“

Söngkonan lætur þó ekki þar við setja heldur stefnir hún á að taka upp aðra plötu með hljómsveit sinni IKI, fara á tónleikaferðalag og kynna sólóplötuna væntanlegu.

Ritstjórn
18.5.2012

Hátíð í Útilíf á morgun: Gjafir, vinningar, dans og tilboð!

easy forsida 2

Mikið verður um að vera í Útilíf í Kringlunni á morgun frá 14-16. 20% afsláttur verður af EasyTone skóm sem algerlega hafa slegið í gegn hjá íslenskum konum. Í Útilíf, Kringlunni verður 20% afsláttur af EasyTone skóm. Vegleg gjöf frá Nivea fylgir öllum seldum EasyTone skóm. Einnig verður glaðningur frá Nivea fyrir allar sem máta EasyTone [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Hinn fullkomni stelpubíll?

car l

Fullkomin bíll að mati okkar á Bleikt á fallegum föstudegi! Hvað fáum við mörg „læk“ á það?  

Ritstjórn
18.5.2012

Hvernig á að opna vínflösku án upptakara: Myndband

vinflaska

Kannski sniðugasta og nytsamlegasta ráð sem þú munt nokkurn tíma læra!  

Ritstjórn
18.5.2012

Ef þú breytir ekki öryggisstillingunum þínum á Facebook…

privat l

…gæti þetta gerst!  

Ritstjórn
18.5.2012

Óður til brjóstagjafar: Myndband

brjostagjof

Flestar mæður þekkja raunir og ánægju brjóstagjafar af eigin raun. Hér er frábært lag sem samið er af L.A. Women sem er grínhópur frá Los Angeles og kallast það Life Givers. Stórskemmtilegt myndband!  

Ritstjórn
18.5.2012

Hvað stingur í stúf á þessum myndum?

odd fors

Reyndu nú: Hvað gastu margar réttar?  

Aðsendar greinar
18.5.2012

Svar við „Öfundsjúkar kærustur á djamminu“

ofund 2

Ég á kærasta og fer mjög oft með honum á djammið og oftar en ekki lendi ég í því að fullar stelpur reyna við hann fyrir framan nefið á mér. Ég treysti honum fullkomlega og veit vel að hann hefur engan áhuga en samt fer þetta virkilega í taugarnar á mér. Eins og lýst var [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Sniðugur skóskápur

skoskapur l

Við erum alltaf í vandræðum með skóna okkar. Hér er frábær leið til að geyma þá!  

Ritstjórn
18.5.2012

Hversu algengur er afmælisdagurinn þinn?

amm lil

Kíktu á þessa töflu. Frekar athyglisvert, ekki satt?  

Ritstjórn
18.5.2012

„Hey, manni – hvað er klukkan?“

saehestur lil

Frábær mynd sem náðist á Maui, Hawaii  

Nafnlaust
18.5.2012

Játning: Hann er tveimur árum yngri en ég

jat

Ég er 17 ára stelpa og á yndislegan strákavin sem ég treysti fyrir öllu. Við kynntumst í gegnum netið og erum búin að þekkjast í 3 mánuði. Við erum búin að upplifa margt og mikið saman. Hittumst alltaf fyrst með vinum en erum núna farin að hittast bara 2. En ég er farin að finna fyrir meiru en [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Nýja forsetafrú Frakka er virkilega flott fyrirmynd

VT forsida

Valérie Trierweiler er kona nýkjörins forseta Frakka, François Hollande. Eftir að hafa lesið um hana á New York Times erum við þess fullvissar að franskar konur gætu ekki fengið betri fyrirmynd. Í fyrsta lagi heldur hún nafninu sínu, þ.e. tekur ekki eftirnafn mannsins síns. Hún er 47 ára gömul og hefur verið einn fremsti stjórnmálablaðamaður [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Einmitt frumsýningarkjóllinn sem við vorum að leita að!

kj forsida

Nei, við erum ekki að djóka – fyrirsætan Michaela Schaefer var í þessu dressi á frumsýningu kvikmyndarinnar Men In Black 3 í Berlín á dögunum. Afar sérstakur kjóll…og eftirminnilegur!  

Ágústa Arna
17.5.2012

Eurovision 2012 – Lögin sem keppa þann 24. maí

eurovision

Nú er Eurovision undirbúningurinn á fullu og keppendur komnir til Baku þar sem þeir æfa stíft og taka þátt í fjölmiðlafárinu í kringum keppnina. Ágústa Arna hefur velt lögunum mikið fyrir sér að undanförnu og hefur birt umfjöllun um 18 fyrstu lögin sem munu keppa ásamt Grétu Salóme og Jónsa þann 22. maí og nú [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Diskódrottningin Donna Summer látin

donna summer

Diskódrottningin Donna Summer er látin, 63 ára að aldri. Hún hafði barist við krabbamein. Samkvæmt slúðurvefnum TMZ hafði hún barist lengi við krabbameinið en hafði reynt að leyna því hversu veik hún var orðin. Hátindur Summer var á áttunda áratugnum þegar diskótíminn var í hámarki og átti hún lög eins og Last Dance,  Hot Stuff og [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Stelpurnar í Júník voru að fá SJÚKLEGAR buxur!

budin buxur

Júník í Smáralind: Voru að fá buxur aftur sem ruku út á sínum tíma. Eftir langa bið eru þær komnar aftur og eru algerlega að slá í gegn! Þær eru með þvílíkt úrval af glænýjum vörum og er búðin ein sú heitasta í bænum í dag! BUXURNAR! BÚÐIN!