Í dag er sannað að smokkurinn er besta vörnin gegn kynsjúkdómum og getnaði. En hvernig eigum við að verja okkur gegn kynsjúkdómum og getnaði ef við höfum ekki efni á að kaupa ákveðnar verjur?
Við sem einstaklingar sem tökum þátt í félagslífi unglinga vitum að unglingar eru farnir að stunda óvarið kynlíf af því að þeir hafa ekki efni á að verja sig með getnaðarvörnum. Unglingar vita vel að illa gæti farið ef ekki eru notaðar varnir en hjá mörgum sem eru ekki í vinnu og eiga lítinn sem engan pening eru smokkakaup ekki fyrsta val. Við viljum beina athygli að því að við erum aðeins að tala um helstu getnaðarvarnir sem unglingar nota eins og pilluna og smokkinn.
Þó það sé mismunandi eftir apótekum kostar neyðarpillan í kringum 2700 kr. á Akureyri. Okkur var kennt í kynfræðslu sem við fengum í grunnskóla að hún væri frí í öllum tilfellum en það gildir greinilega ekki í dag – kannski hækkaði verðið á getnaðarvörnum svona mikið með kreppunni. Okkur finnst að neyðarpillan ætti að vera frí þar sem ekki allir hafa efni á að kaupa hana. Raunar er þetta svipað verðinu á venjulegu pilluspjaldi.
Ekki hefur enn tekist að fá lækkun getnaðarvarna í gegn en það er einmitt markmið okkar. Við viljum að getnaðarvarnir séu niðurgreiddar af ríkinu og að neyðarpillan sé frí. Við viljum einnig að smokkar verði gefnir ókeypis í skólum og að nemendur í framhaldsskólum fái almennilega kynfræðslu. Magn á fræðslu er mismunandi eftir skólum en auðvitað ætti hún að vera meiri alls staðar.
Staðreyndir og tölfræðilegar upplýsingar
1.Frá 1961-2003 voru 220 fóstureyðingar af hverjum 1000 sem urðu ófrískar.
2. Árin 2001-2003 var meginhluti þeirra kvenna sem fóru í fóstureyðingu á aldrinum 15-34 ára.
3. Aðalástæður fóstureyðinga eru oftast lítið eða ekkert samband við barnsföður eða að ófrísk kona er einstæð móðir.
4. Árið 2006 smituðust 466 unglingar á aldrinum 15-19 ára af klamydíu og 630 á aldrinum 20-24 ára.
5. Árið 2003 voru 951 fóstureyðingar framkvæmdar á Íslandi en það mesta sem hefur mælst var árið 2000 en það voru 987 fóstureyðingar.
6. Árið 2009 voru skráðar 971 fóstureyðingar meðal kvenna með lögheimili á Íslandi
7. Fóstureyðing kostar ca. 200.000 (aðgerðin sjálf) sem ríkið borgar. Hvort er dýrara fyrir ríkið að niðurgreiða verð á getnaðarvörnum eða þurfa að borga margar milljónir fyrir allar þær fóstureyðingar sem fara fram á hverju ári.
Við leggjum til að…
1. Neyðarpillan sé frí í öllum tilvikum í apótekum.
2. Verð á smokkum verði lækkað í verslunum, sjoppum og apótekum um allt land.
3. Nemendur í framhaldsskólum fái kynfræðslu, líkt og í grunnskólum og að gefinn sé allavega einn smokkur til hvers nemenda.
4.Í apótekum verði tekin niður kennitala kaupandans. Þannig er hægt að koma í veg fyrir að kaupandinn noti pilluna sem almenna getnaðarvörn.
5. Í kynfræðslu sé lögð meiri áhersla á rétta ímynd kynlífs. Fleiri og fleiri unglingar í dag eru farnir að stunda kynlíf við manneskju sem þau þekkja lítið og tala afar lítið við eftir fundinn.
Nauðsynlegt er að fá verð á getnaðarvörnum lækkað. Unglingar í dag verða að geta varið sig gegn kynsjúkdómum og getnaði án þess að þurfa að borga fleiri tugi þúsunda fyrir það. Kynlíf er dýrt í dag og margir sem hafa ekki efni á því.
Það er því spurning hvort ekki sé bara betra að taka áhættuna og hætta að hugsa um það hvort við verðum ólétt eða fáum kynsjúkdóm og skemmtum okkur bara…
______________________________________________________________________________________
Höfundar:Fríða Kristín, Hólmfríður, Kara Guðný og Sigrún Ösp í Menntaskólanum á Akureyri




















