Nú er kominn á markað agnarsmár prentari frá Polaroid. Lady Gaga átti þátt í hönnuninni en þetta er fyrsti hluturinn í Polaroid Grey Label línunni. Hugmyndin er að prentarinn kallist á við aðra tækni eins og litlar myndavélar og farsíma. Prentarinn er með Bluetooth og því er lítið mál að tengja hann hinum ýmsu græjum.
Græjan þjónar í raun og veru sama hlutverki og gamla góða Polaroid myndavélin sem prentaði myndina út strax eftir að hún var tekin. Hér getur maður smellt af mynd í farsímanum sínum, tengt hann prentaranum og prentað myndina út á 45 sekúndum!
Hægt er að panta Gagaprentarann á heimasíðu Polaraoid og kostar hann 170 dollara eða um 20.000 íslenskar krónur.




















