Á allri minni skólagöngu hafa prófin alltaf tekið á. Ég er þessi stressaða týpa (í hóflegu magni) og ég á það til að hafa gífurlega frestunaráráttu en á sama tíma er ég fullkomnunarsinni og á það til að beila á prófi ef ég hef ekki öll möguleg smáatriði á hreinu.
Eftir að lítið kríli er komið í líf þitt get ég ekki sagt að málin einfaldist. Þvert á móti mætti segja að þau verði ööörlítið flóknari. En bara pínu! Bara smá.. Bara aaaðeins! Nei, hvern erum við að blekkja? Þau verða stórfellt flóknari!
Ég ákvað að semja smá leiðbeiningar fyrir mömmur, já og auðvitað pabba sem eru í skóla og prófum og vantar smá hjálp við að vera góður nemandi með toppeinkunnir og gott foreldri með toppeinkunn!
Áður en lesið er áfram vil ég geta þess að ekki skal taka undirritaða of hátíðlega, leiðbeiningarnar skulu lesast með húmor og varist að hafa alvarleika að leiðarljósi…
Ókei, svona til að byrja með. Endurstilltu klukkuna þína! Að vera með barn og vera í skóla er mikil vinna og krefst aðeins lengri tíma svo gríptu í skynsemina og bættu í minnsta lagi þremur tímum við í sólarhringinn! Og þá getum við byrjað..
Númer 1: Dagurinn byrjar, klukkan hringir. Farðu á fætur og slepptu snús-takkanum í þetta skiptið! Náðu að fá þér að borða og allavega tannbursta áður en þú vekur litla skæruliðann og gerir hann tilbúinn í leikskólann. Náttfötin mega vera kyrr í rúminu, þú þarft hvort eð er að koma þér aftur í þau áður en þú veist af.
Númer 2: Ertu að læra eðlisfræði? Fínt, nýttu þá tækifærið og mældu tímann sem það tekur að labba með krílið í leikskólann, mældu vegalengdina og finndu hver meðalhraðinn er. Alveg stórskemmtilegt get ég sagt þér, stórskemmtilegt!
Númer 3: Komdu þér strax í gírinn þegar heim er komið og sestu niður við lærdóminn. Nei, það er ekki góð hugmynd að skríða uppí rúm að lesa! Ég veit það er kalt og hlýtt uppí rúmi en það er bara ekki góð hugmynd!
Númer 4: Verðlaunaðu þig eftir klukkutíma lestur með einu litli húsverki! Svo upplífgandi á milli langra kafla að skella sér í smá uppvask! Tala nú ekki um að þvo eina vél af skítugum nærfötum! Hvað með að skella þér í notalegan göngutúr….. alla leið út með ruslið?
Númer 5: Ertu svöng/svangur? Ekki taka þér klukkutíma í að dunda þér við að skreyta dýrindis samloku. Let´s face it, þú hefur ekki tíma fyrir svona rugl! Skelltu núðlum í skál, stilltu örbylgjuofninn á 5 mín og inn með þær! Ertu í næringarfræði? Fínt, lestu þá innihaldið á núðlupakkanum á meðan og reiknaðu út hversu stórkostlega frábæran og fjölbreyttan mat þú ert að fara að innbyrða!
Númer 6: Ég veit að feisbúkk er skemmtilegt en nema þú sjáir statusa sem innihalda ótrúlega fræðandi og uppbyggilegt efni tengt námsefninu þínu… slepptu því.
Númer 7: Klukkan er korter í fjögur. Fimmtán mínútur í að þú þurfir að sækja skæruliðann. Nýttu hverja einustu mínútu í lærdóminn og passaðu þig að vera komin aaalveg á síðustu stundu. Ekki láta það á þig fá að sjá krílið bíða við hurðina með hendurnar upp við glerið, tárin í augunum og hjartað á mörkum þess að bresta vegna söknuðar.. Barnið getur beðið. Mamma þarf að læra!
Númer 8: Þegar heim er komið er upplagt að bæta upp fyrir glataðan tíma yfir daginn og gera einhvað skemmtilegt saman. Farið að lita! Barnið teiknar þessa fínu mynd á meðan þú teiknar eitt stykki skilaverkefni. Passaðu þó að halda slefi og öðrum líkamsvessum barnsins frá þínu blaði. Hörðnuð horklessa getur valdið misjöfnum viðbrögðum kennara!
Númer 9: Það fer að koma kvöldmatartími. Útbúðu einhvað fljótlegt, það hentar. Ertu að læra matvælafræði, náttúrufræði? Fínt, skelltu mjúku gúrkunni (sem er búin að hírast nokkrar vikur í ískápnum vegna skorts á tíma til innkaupa) í vatn og sjáðu hvernig hún hægt og rólega verður stinn og fín aftur. Eykur skilning þinn á osmósu og allir vinna!
Númer 10: Leggist upp í rúm og eigið kósý stund saman áður en þú byrjar aftur á lærdómnum. Þið eigið skilið smá bonding-time.. Hey! Syngdu aðeins fyrir litla krílið! Hverjum finnst ekki róandi að hlusta á persónuleikakenningar Frauds við lagið „Bíum bíum bamba?“
Njótið vel !
Emma Ævarsdóttir




















