Atli Þór Albertsson, leikari, stöðvaði unglingaslagsmál í Kringlunni í dag. Segir hann fjölda fólks hafa verið nálægt en enginn gerði neitt á meðan þau stóðu yfir og hópurinn tók myndir og myndbönd af slagsmálunum.
Atli skarst í leikinn og segir svo á Facebooksíðu sinni: „Erum við í alvöru orðin þetta heiladauð og passíf að leyfa svona löguðu að viðgangast?“
Aðspurður segir Atli að slagsmálin hafi aðallega verið á milli stelpna og um 40 krakkar mynduðu hring utan um slagsmálin. „Ég veitti þessu eftirtekt þegar ég heyrði smell eftir hnefahögg og sá að það voru átök í gangi inni í hringnum.“

Þegar Atli kom að var önnur stúlkan komin ofan á hina og var að kýla hana. „Ég reif hana af henni og fór með hana inn nærliggjandi verslun.“
Segir Atli litla samúð hafa ríkt í hópnum sem fylgdist með:„Það sem var sérstaklega slæmt var hversu krakkarnir höfðu gaman af þessu, þeir hlógu og tóku myndir og myndbönd.“
Atli braut upp slagsmálin og tvístraðist hópurinn fljótt við þetta og þau létu sig hverfa. „Ég bað afgreiðslukonu að láta Securitas vita og meira gat ég svo ekki gert,“ segir hann og skorar hann á fólk að láta sig málið varða þegar svona kemur upp.




















