Á hverju sumri lyfta Súgfirðingar sér upp og halda Sæluhelgina hátíðlega. Í Ár verður helgin haldin í 25 sinn og er undirbúningur helgarinnar formlega hafinn. Aðstandendur helgarinnar eru ekki aðeins að undirbúa hinar ýmsu uppákomur heldur einnig marhnútaveiðikeppni, húsmæðrafótbolta, sleggjukast og auðvitað má ekki gleyma leitinni að Sæluhelgarlaginu 2012.
Sæluhelgarlagið hefur fylgt keppninni síðustu ár og nú verður haldin keppni til þess að finna þetta vinsæla lag Súgfirðinga og eru vegleg verðlaun í boði en sigurvegarinn fær að launum flugfar fram og til baka fyrir tvo til Ísafjarðar, frítt í sund, tveggja manna herbergi á Fisherman hótel í þrjár nætur og auðvitað glæsilegan kvöldverð fyrir tvo á veitingahúsinu Talisman.
Reglur keppninnar eru svohljóðandi:
„Lagið má ekki hafa heyrst áður og skal vera í demo útsetningu, mest tvö hljóðfæri og söngur. Lagið skal vera hljóðritað á CD disk merkt heiti lagsins og dulnefni. Rétt nafn höfundar og síma-númer skal vera í lokuðu umslagi merkt dulnefni. . Textasmiðir skulu yrkja um Sæluna eða einhver þekkt Súgfirsk kenninöfn og skal textinn fylgja með í lokaða umslaginu. Sérstök dómnefnd sem gildir 60% sér svo um að reglum keppninnar sé framfylgt. Skilafrestur er 15. apríl og sendist til: „Mansavinir, Hlíðarvegi 4, 430 Suðureyri.“
Nánari upplýsingar um keppnina og aðstandendur hennar er hægt að finnahérog sigurlagið frá í fyrra má hlusta á hér að neðan en það var Albert Pálsson sem vann keppnina í fyrra með laginu Essasú. Hljómsveitin Sagaklass flutti lagið.




















