Lífið snýst allt um valkosti
05.02.2012 Aðsendar greinar

Jón vinur minn er rekstrarstjóri á veitingastað. Hann er alltaf í góðu skapi og hefur alltaf eitthvað jákvætt að segja. Þegar einhver spyr hann hvernig hann hafi það, þá svara hann alltaf, „Ef ég hefði það betra, þá væri ég tvíburar!“

Margir þjónar á veitingastöðunum sem hann hefur unnið á, hafa skipt um vinnustað, svo þeir gætu fylgt honum þegar hann hefur skipt um vinnustað. Ástæðan er jákvæða viðmótið hjá Jóni og hversu hvetjandi hann er alltaf. Ef einhver starfsmaðurinn átti slæman dag, þá var Jón mættur, talandi um hvernig hægt væri að horfa á jákvæðu hliðarnar á málinu.

Ég tók eftir þessu og það vakti forvitni mína, svo einn daginn fór ég til Jóns og spurði hann, „Ég næ þessu ekki, enginn getur verið svona jákvæður,alla daga, öllum stundum. Hvernig ferðu að þessu ?“ „Sjáðu nú til,“ svaraði Jón, „á hverjum morgni þegar ég vakna og segi við sjálfan mig, í dag á ég tvo valkosti, ég get valið að vera í góðu skapi, eða ég get valið að vera í vondu skapi. Ég vel alltaf að vera í góðu skapi.

Í hvert skipti þegar eitthvað slæmt kemur fyrir, get ég valið að verða fórnarlambið eða ég get valið að læra eitthvað á þessu atviki. Ég vel alltaf að læra eitthvað í hvert skipti sem einhver kemur til mín kvartandi, get ég valið að samþykkja þeirra kvartanir eða ég get bent á jákvæðu hliðarnar á málinu og lífinu sjálfu.

Ég vel alltaf jákvæðu hliðarnar.“ „Já, en það er nú ekki alltaf auðvelt“ mótmælti ég. „Jú það er það“ sagði Jón. „Lífið snýst allt um valkosti. Þegar þú ert búinn að sneiða í burtu allan óþarfann, þá eru valkostir í hverri stöðu. Þú velur hvernig þú bregst við þessari stöðu. Þú velur hvernig aðrir hafa áhrif á þitt skap. Þú velur að vera í góðu skapi eða vondu skapi. Það er þinn valkostur hvernig þú lifir þínu lífi.“

Nokkrum árum seinna frétti ég, að Jón hefði af slysni gert nokkuð sem þú átt aldrei að gera í veitingageiranum, hann skildi lagerdyrnar eftir opnar eitt kvöldið og var rændur af þremur vopnuðum mönnum. Á meðan að hann var að reyna að opna peningaskápinn, skjálfhentur og sveittur runnu hendur hans af talnalásnum, ræningjana greip skyndireiði og þeir skutu hann.

Sem betur fer fannst Jón fljótlega og var strax komið á spítala. Eftir 18 klukkustunda skurðaðgerð og margar vikur í gjörgæslu, var Jón útskrifaður af spítalanum með byssukúlubrot ennþá í líkama hans. Ég hitti Jón um það bil sex mánuðum eftir slysið. Þegar ég spurði hann hvernig hann hefði það, svaraði hann „, „Ef ég hefði það betra, þá væri ég tvíburar ! Viltu sjá örin mín ?“

Ég hafði ekki áhuga á því, en spurði hvaða hugsanir hann hefði haft meðan að ránið átti sér stað. „Það fyrsta sem ég hugsaði var að ég hefði átt að læsa lagerdyrunum,“ svaraði hann. „Síðan eftir þeir skutu mig, á meðan ég lá á gólfinu, mundi ég að ég átti tvo valkosti. Ég gat valið að lifa eða ég gat valið að deyja. Ég valdi að lifa.“

„Varstu ekki hræddur ?“ spurði ég. Jón hélt áfram „Fólkið í sjúkraliðinu var frábært. Þau sögðu mér aftur og aftur að þetta yrði allt í lagi. En þegar mér var rúllað inná neyðarvaktina og ég sá á svipnum á læknunum og hjúkrunarfólkinu, þá varð ég verulega hræddur.“

Í augum þeirra las ég. „Þessi er dauðans matur“. Þá vissi ég að ég yrði að gera eitthvað“. „Og hvað gerðirðu ?“ spurði ég. „Það var þarna stór og mikil hjúkrunarkona kallandi til mín,“ sagði hann. „Hún spurði hvort ég hefði ofnæmi fyrir einhverju.“ „Já, svaraði ég. Læknarnir og hjúkrunarfólkið hættu að vinna, litu upp og biðu eftir framhaldinu“. Ég dró djúpt andann og öskraði: „Byssukúlum!’

Á meðan þau hlógu, sagði ég þeim að ég kysi að lifa. „Í guðanna bænum, framkvæmið aðgerðina eins og ég sé lifandi, en ekki dauður.“ Jón lifði þetta af vegna hæfileika læknanna, en líka vegna hans einstaka viðmóts.

Ég lærði af honum að á hverjum degi getum við valið að njóta lífsins eða hata það. Það eina sem er raunverulega þitt, sem enginn á að geta stjórnað nema þú, eða tekið frá þér, er þitt viðmót, svo þú skalt fara vel með það og allt annað í lífinu mun verða miklu auðveldara.

– Nú hefur þú um tvo valkosti að velja :
1. Þú getur gleymt þessari sögu eða
2. Þú getur sagt hana einhverjum sem þér þykir vænt um.

- Ég vona að þú veljir síðari valkostinn, það gerðiég.

______________________________________________________________________________________

Höfundur óþekktur

Ritstjórn
23.5.2012

Sjóðheit prófílmynd?

se lil

Ekki kannski alveg eins og hún hafði hugsað sér hana….  

Ritstjórn
23.5.2012

Hver ætli ráði á þessu heimili?

raedur l

Þú þarft bara að líta einu sinni á myndina til að sjá það…!  

Ritstjórn
23.5.2012

Rúmfræði: Level 900

rumfr lil

Hvernig…? Bara – HVERNIG?  

Ritstjórn
23.5.2012

Mörgæsaungi vs maður

mörgæs

Hversu mikið krútt getur maður verið? Þessi litli mörgæsaungi var ekkert hræddur við að ráðast á manninn og setjast hreinlega á andlitið á honum.

Sigurveig
23.5.2012

Síðbúinn „mæðradagsbröns”

bröns

Snilldin ein frá matgæðingnum Sigurveigu Káradóttur!   Pönnuklessur: 200 gr spelt 25 gr hveitikím 25 gr hveitiklíð 2 tsk lyftiduft 50 gr hunang 200 gr eplamauk 2 egg 2 msk kókosolía – brædd á pönnu ( og svo meiri kókosolía til að steikja úr ) Þurrefnin sett saman í skál og restinni síðan blandað saman [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Uppfærðu Angry Birds

angrybirdsforsida

Það hafa flestir spilað leikinn sem en fæstir láta sig dreyma um að falla niður með þessum reiðu fuglum eða þjóta á meðal þeirra í hringekjum. Nú hafa leikjahönnuðir Angry Birds hinsvegar uppfært leikinn og fært hann inn í raunveruleikann með tilkomu skemmtigarðar sem er að sjálfsögðu tileinkaður fuglunum og óvinum þeirra. Skemmtigarðinn er að [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Mansal er algengara en við höldum: Óhugnanlegir þættir frá BBC

mansal forsida

Við höfum einstakan hæfileika til að loka augunum fyrir því hræðilega sem á sér stað á degi hverjum í heiminum. Mansal er eitt af þeim atriðum. Við lesum um mansal í bókum og dagblöðum, sjáum heimildarmyndir og vitum að það tíðkast um heim allan en það er erfitt að setja sig í spor þessa heims [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Eurovision: 1500 sinnum #12stig á Twitter

tvit

„Tíst Íslendinga voru fyndnari en breski þulurinn,“Gísli Marteinn, lögreglustjórinn í Reykjavík og forstjóri CCP meðal þeirra sem lögðu orð í belg. Mjög líflegar umræður sköpuðust um söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöða á vefsíðunni Twitter.com í kvöld. Bæði í Evrópu allri en íslenskir notendur vefsíðunnar hafa líklega aldrei verið jafn virkir í umræðunum um Eurovision.  1500 íslensk tíst [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ísland kemst áfram í Eurovision!

gretajonsi

Þau Gréta Salóme og Jónsi voru stórkostleg á sviðinu og ef marka má kosningarnar heilluðu þau ekki bara landann heldur einnig Evrópu en framlag okkar Íslendinga mun keppa í aðalkeppninni næstkomandi laugardag. Gréta og Jónsi voru númer tvö á sviðið og var atriðið þeirra svo sannarlega vel útfært. Blái liturinn á sviðinu fór laginu einstaklega [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Komast Gréta og Jónsi upp úr undanúrslitakeppninni í kvöld?

eurovision

Í kvöld munu Eurovisionfararnir okkar stíga á stóra sviðið Kristalhöllinni í Bakú og flytja framlag okkar Íslendinga til Eurovisions í ár. Þau Gréta og Jónsi munu keppa ásamt 18 öðrum löndum um þau 10 sæti sem fá að taka þátt í  undanúrslitakeppninni en löndin eru í þessari röð: Svartfjallaland: Rambo Amadeus – Euro Neuri Ísland: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ömmustig – Gamlar og krumpaðar konur á sviðinu

euro1

Eins og flestir Eurovision aðdáendur vita þá er það ekki aðeins flutningurinn á laginu sem skiptir máli heldur öll umgjörðin. Því hafa margir Eurovision áhagendur hafa tekið upp einskonar stigagjöf og fylgir sumum þeirra ansi hávær köll, skotglas og jafnvel gretta ef innihald skotglassins var bragðsterkt. En fyrir hvað á að gefa stig? Bleikt rakst [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Grillaður lax með teriyaki

lax

Sjúklega girnilegur og sumarlegur réttur fyrir þá sem veiða/þekkja veiðimenn! Mmm….grill og lax. Verður það eitthvað betra?     Fyrir 4. Innihald: 600 gr. lax, roð- og beinlaus 4 stk. Blue Dragon eggjanúðlur (200 gr.) 400 gr.wok grænmeti, ferskt eða frosið 165 ml. Blue Dragon kókosmjólk 1 stk. Blue Dragon Teriyaki Stir Fry sósa Aðferð: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Green Tea Smoothie

green tea

Nú er sumarið komið og stefnir í tveggja stiga hitatölur um helgina.  Við mælum með þessum, sem ferskur og sumarlegur með hækkandi hitastigi um allt land.   Innihald 1 frosinn banani. ½ stór hunangsmelóna, skorin í bita. ¾ úr bolla af Green Tea (notið 2 tepoka og látið standa í 10 mín ) 1 tsk. hunang. ¼ [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Er hægt að komast yfir köngulóarfóbíu?

konguloarfobia

Köngulær eru ekki öllum að skapi. Þær eru alveg fallegar..sumar en geta valdið ógurlegri hræðslu hjá fólki og stundum fylgja öskur á háa c-inu með. Ef þú ert ein/n af þeim sem þolir ekki köngulær eru þetta kannski góðar fréttir fyrir þig: Nýleg rannsókn sýnir að hægt er að breyta köngulóarfóbísku fólki í köngulóarþolendur eftir [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ekkert Eurovision í Albaníu: Þjóðin syrgir háskólanema

rutuslys

Skelfilegt slys átti sér stað í Albaníu þegar rúta, full af háskólanemum, féll 150 metra niður í stórt gljúfur nálægt borginni Himara eða um 136 km suður af höfuðborginni Tirana. Staðfest er að 12 manns hafi látið lífið og eru 25 alvarlega slasaðir. 49 kvenkynsnemendur voru í rútunni ásamt rútubílstjóranum sem virðist hafa reynt að [...]