McDonalds á sér fjölmarga ástmenn og ástkonur. Margir hafa óskað þess að staðurinn opni útibú á Íslandi og var fjöldi fólks á því að frétt þess efnis væri sönn. Fréttin var grín og hefur nú verið beðist afsökunar á spauginu.
Mikið grín og mikið gaman – en ekki fyrir alla:

Um spaug var að ræða en fréttin birtist fyrst á grínfréttaveitunni helvit.is og því næst á afþreyingarvefnum vol.is.

Eflaust hafa margir fengið McDonald´s unnendur fengið vatn í munninn við tilhugsunina um opnun staðanna á Íslandi en bæði birti RÚV frétt um málið sem og Viðskiptablaðið. Fréttamiðlarnir hafa nú báðir tekið út frétt um málið.
Frétt Viðskiptablaðsins frá því í morgun:

Frétt RÚV frá því í gærkvöld:

Fullyrt var að samið hefði verið við N1 á Íslandi um að hýsa skyndibitastaðinn en þegar forstjóri N1 á Íslandi var vakinn eldsnemma í morgun sáu grínistarnir að sér og hafa nú beðist afsökunar á tiltækinu og minnir á að fréttir þeirra eigi að vera „skemmtilegar“ en eigi sér ekki endilega stoð í raunveruleikanum.




















