Meðlag nær ekki 25 þúsund krónum
08.02.2012 Ritstjórn

Meðlag með einu barni hefur hækkað úr 17.249 krónum í 24.230 krónur á sex árum. Þetta er það sem einstætt foreldri fær á mánuði. Upphæðin dugar ekki einu sinni fyrir fullri dagvist hjá dagforeldri. Engin föst regla er um upphæð meðlagsins eða hvort hún fylgir vísitölu eða launahækkunum heldur er það bara ákvörðun og afgreiðsla ráðuneytisins hverju sinni.

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu geta fæst boðið ungum börnum upp á leikskólapláss, jafnvel þó um einstæð foreldri sé að ræða. Í Reykjavík kostar leikskólaplássið samtals 14.477 krónur á mánuði og er þá miðað við átta tíma vistun og fullt fæði. Samkvæmt útreikningum borgarinnar kostar gæslan 7.096 krónur og fæðið 7.381 krónu á mánuði.

Dagforeldrar hafa frjálsa verðskrá og borgarstarfsmenn mega ekki gefa upp verð hjá dagforeldrum. Bleikt hafði því samband við dagforeldri í Reykjavík sem tekur 90 þúsund krónur á mánuði fyrir barnið. Borgin greiðir vistunina niður um 55.752 krónur þannig að dagvistun barns undir tveggja ára aldri, sem ekki verður tveggja ára á árinu, kostar þá 34.248 krónur á mánuði.

Meðlag upp á rúmar 24 þúsund krónur á mánuði dugar því engan veginn til að greiða mánaðarvistun hjá dagforeldri, hvað þá að greiða annan kostnað við uppeldi barnsins. Erfitt er að sjá að einstæða foreldrið geti farið í skóla eða út á vinnumarkaðinn við þessi kjör. Ekki nema að fá ókeypis gæslu fyrir barnið því að útgjöldin eru gífurleg. Þannig kostar til dæmis úlpa á ungbarn 4.199 krónur, loðstígvél kosta 2.499 krónur, samfella kostar 1.499 og peli með snuði kostar 1.359 krónur í Hagkaup svo að eitthvað sé nefnt af öllu því sem þarf til að halda ungbarni uppi.

Meðlag er ákveðið í fjárlögum. Hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga fást þær upplýsingar að meðlagið hafi haldist í hendur við þróunina í almannatryggingakerfinu undanfarin ár. Þegar óskað er eftir svörum við því hvað ráði upphæðinni eða fyrir hverju hún eigi að duga þá er vísað á Tryggingastofnun, fjármálaráðuneytið og velferðarráðuneytið.

Guðbjartur Hannesson, ráðherra velferðarmála, segir að hækkunin hafi undanfarið ár verið miðuð við neysluvísitölu og kjarasamninga. Í meginatriðum sé reynt að láta meðlagshækkanir fylgja launahækkunum þannig að alltaf sé borga svipað hlutfall af tekjum og þannig hafi það verið þegar hækkunin nú í janúar hafi verið ákveðin en þetta hafi ekki alltaf staðist.

Í ráðuneytinu veit enginn hvernig meðlagsupphæðin var upphaflega fundin út eða miðað við hvað hafi verið miðað.

Sérbox:

Upphæð meðlags

Janúar 2006 17.249

Janúar 2007 18.284

Janúar 2008 19.000

Febrúar 2008 19.760

Janúar 2009 21.657

Júní 2011 23.411

Janúar 2012 24.230

Heimild: Innheimtustofnun sveitarfélaga

Ritstjórn
18.5.2012

Hátíð í Útilíf á morgun: Gjafir, vinningar, dans og tilboð!

easy forsida 2

Mikið verður um að vera í Útilíf í Kringlunni á morgun frá 14-16. 20% afsláttur verður af EasyTone skóm sem algerlega hafa slegið í gegn hjá íslenskum konum. Í Útilíf, Kringlunni verður 20% afsláttur af EasyTone skóm. Vegleg gjöf frá Nivea fylgir öllum seldum EasyTone skóm. Einnig verður glaðningur frá Nivea fyrir allar sem máta EasyTone [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Hinn fullkomni stelpubíll?

car l

Fullkomin bíll að mati okkar á Bleikt á fallegum föstudegi! Hvað fáum við mörg „læk“ á það?  

Ritstjórn
18.5.2012

Hvernig á að opna vínflösku án upptakara: Myndband

vinflaska

Kannski sniðugasta og nytsamlegasta ráð sem þú munt nokkurn tíma læra!  

Ritstjórn
18.5.2012

Ef þú breytir ekki öryggisstillingunum þínum á Facebook…

privat l

…gæti þetta gerst!  

Ritstjórn
18.5.2012

Óður til brjóstagjafar: Myndband

brjostagjof

Flestar mæður þekkja raunir og ánægju brjóstagjafar af eigin raun. Hér er frábært lag sem samið er af L.A. Women sem er grínhópur frá Los Angeles og kallast það Life Givers. Stórskemmtilegt myndband!  

Ritstjórn
18.5.2012

Hvað stingur í stúf á þessum myndum?

odd fors

Reyndu nú: Hvað gastu margar réttar?  

Aðsendar greinar
18.5.2012

Svar við „Öfundsjúkar kærustur á djamminu“

ofund 2

Ég á kærasta og fer mjög oft með honum á djammið og oftar en ekki lendi ég í því að fullar stelpur reyna við hann fyrir framan nefið á mér. Ég treysti honum fullkomlega og veit vel að hann hefur engan áhuga en samt fer þetta virkilega í taugarnar á mér. Eins og lýst var [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Sniðugur skóskápur

skoskapur l

Við erum alltaf í vandræðum með skóna okkar. Hér er frábær leið til að geyma þá!  

Ritstjórn
18.5.2012

Hversu algengur er afmælisdagurinn þinn?

amm lil

Kíktu á þessa töflu. Frekar athyglisvert, ekki satt?  

Ritstjórn
18.5.2012

„Hey, manni – hvað er klukkan?“

saehestur lil

Frábær mynd sem náðist á Maui, Hawaii  

Nafnlaust
18.5.2012

Játning: Hann er tveimur árum yngri en ég

jat

Ég er 17 ára stelpa og á yndislegan strákavin sem ég treysti fyrir öllu. Við kynntumst í gegnum netið og erum búin að þekkjast í 3 mánuði. Við erum búin að upplifa margt og mikið saman. Hittumst alltaf fyrst með vinum en erum núna farin að hittast bara 2. En ég er farin að finna fyrir meiru en [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Nýja forsetafrú Frakka er virkilega flott fyrirmynd

VT forsida

Valérie Trierweiler er kona nýkjörins forseta Frakka, François Hollande. Eftir að hafa lesið um hana á New York Times erum við þess fullvissar að franskar konur gætu ekki fengið betri fyrirmynd. Í fyrsta lagi heldur hún nafninu sínu, þ.e. tekur ekki eftirnafn mannsins síns. Hún er 47 ára gömul og hefur verið einn fremsti stjórnmálablaðamaður [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Einmitt frumsýningarkjóllinn sem við vorum að leita að!

kj forsida

Nei, við erum ekki að djóka – fyrirsætan Michaela Schaefer var í þessu dressi á frumsýningu kvikmyndarinnar Men In Black 3 í Berlín á dögunum. Afar sérstakur kjóll…og eftirminnilegur!  

Ágústa Arna
17.5.2012

Eurovision 2012 – Lögin sem keppa þann 24. maí

eurovision

Nú er Eurovision undirbúningurinn á fullu og keppendur komnir til Baku þar sem þeir æfa stíft og taka þátt í fjölmiðlafárinu í kringum keppnina. Ágústa Arna hefur velt lögunum mikið fyrir sér að undanförnu og hefur birt umfjöllun um 18 fyrstu lögin sem munu keppa ásamt Grétu Salóme og Jónsa þann 22. maí og nú [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Diskódrottningin Donna Summer látin

donna summer

Diskódrottningin Donna Summer er látin, 63 ára að aldri. Hún hafði barist við krabbamein. Samkvæmt slúðurvefnum TMZ hafði hún barist lengi við krabbameinið en hafði reynt að leyna því hversu veik hún var orðin. Hátindur Summer var á áttunda áratugnum þegar diskótíminn var í hámarki og átti hún lög eins og Last Dance,  Hot Stuff og [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Stelpurnar í Júník voru að fá SJÚKLEGAR buxur!

budin buxur

Júník í Smáralind: Voru að fá buxur aftur sem ruku út á sínum tíma. Eftir langa bið eru þær komnar aftur og eru algerlega að slá í gegn! Þær eru með þvílíkt úrval af glænýjum vörum og er búðin ein sú heitasta í bænum í dag! BUXURNAR! BÚÐIN!