Í blíðskaparveðri á falegu sumarkvöldi er fátt betra en að þeysa um á gljábónuðum stálfákum. Síðastliði föstudagskvöld hittist Mercedes-Benz klúbburinn á Kvartmílubrautinni í Hafnarfirði og máttu allir vera með svo framarlega sem þeir voru á Benz.
Mercedes-Benz klúbburinn (MBKÍ) er hluti af Mercedes-Benz Car Clubs international og stendur klúbburinn fyfir ýmiss konar uppákomum og fræðslu. Hér er síða klúbbsins og HÉR má komast á Facebooksíðu klúbbsins.
Nýjustu fréttir af Kvartmílubrautinni má sjá HÉR en Kvartmíluklúbburinn auglýsir alla viðburði inni á síðunni.
Myndir: HS MOTORSPORTPHOTO og Malín Brand




















