Móeiður Sif: Draumurinn að gerast tattúari
15.03.2011 bragikort

Við birtum hér myndaþátt Braga Kort af Móeiði Sif Skúladóttur. Flott stelpa sem hefur tekið þátt í Hawaiian Tropic og Samúelkeppninni.

Hvernig lýsir þú þér?


Ég myndi lýsa mér sem bara opinni manneskju. Ég er jarðbundin en hef gaman að því að fara út og hitta fólk.

Hvað ertu að gera í dag?

Ég er að læra listfræði í Háskóla Íslands- hef mikinn áhuga á list og draumurinn er að gerast tattúari, eða allavega eitthvað listtengt.

Segðu okkur frá módelstörfunum:

Fyrsta svona alvöru módel verkefnið mitt var þegar ég fór í Hawaiian Tropic keppnina. Ásdís Rán sá þá um keppnina. Ég er rosalega ánægð með að hafa farið í þá keppni því eftir keppnina bauðst mér fleiri og fleiri módelverkefni og ég kynntist mörgum æðislegum stelpum í keppninni. Ég lenti í þriðja sæti þá og útfrá því þá fékk ég að taka þátt í Miss Bikini International sem haldin var í Kína, og sú ferð var meiriháttar.

Ég hef einnig tekið þátt í ýmsum litlum verkefnum í tengslum við Séð og heyrt, eins og til dæmis Bond stúlkan. Ég hef setið fyrir í Hagkaupsbæklingunum líka og ýmislegt fleira.

Síðastliðinn nóvember tók ég þátt í Samúelkeppninni og vann þá keppni, og má segja að ég sé ennþá brosandi í dag þess vegna

Ertu í sambandi?

Ég er á lausu.

Hver eru framtíðarplönin?

Framtíðarplönin eru að klára skólann og vonandi komast út í skiptinám, helst til Bandaríkjana. en annars reyni ég bara að lifa einn dag í einu.

Hvernig eru íslenskir karlmenn?

Íslenskir karlmenn eru flestir rosalega lokaðir og sjálfselskir en rosalega myndalegir, en auðvitað er þetta jafn misjafnt- er ekki að alhæfa neitt…

____________________________________________________________________________________________

Myndir: Bragi Kort

Flickr. Facebook

Förðun: Þórdís Hrund

Ritstjórn
23.5.2012

Brúðarlína UGG: Myndir

ugg forsida

Við erum ekki að búa þetta til: Nú getur þú gift þig í UGG skóm. Ný lína frá UGGs í Ástralíu auglýsir að nú verði brúðkaupið kósý…            

Ritstjórn
23.5.2012

Setti hún HVAÐ í kaffið hans?

kaffid

Hvað er það hryllilegasta sem hægt er að fá í kaffið sitt? Óánægð 24 ára gömul kona í Singapore, Jumiah að nafni, sló sennilega eitthvert met þegar hún varð ósátt við yfirmann sinn. Hún setti tíðablóð – já, tíðablóð – í kaffið hjá honum. Jumiah hafði unnið fyrir hann í heilt ár sem húshjálp og [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Byltingarkennd háreyðing: Epilsoft hanskinn

Epilsoft má nota á öll líkamshár og hentar öllum húðgerðum.

Alveg magnaður! Fólk í Evrópu þekkir Epilsoft hanskann vel en hann er nýjung hér á landi. Hanskinn sér um að fjarlægja öll líkamshár og einnig dauðar húðfrumur og gerir hann húðina silkimjúka.     Engin hætta er á klístruðu vaxi, kremum eða raksápu. Epilsoft hanskinn er til bæði fyrir karla og konur. Mjög auðvelt er [...]

Ritstjórn
23.5.2012

„Hoppa í polla! Hopp…“

hopp

Vissulega gaman hjá þessum þar til…  

Aðsendar greinar
23.5.2012

„Ég þrái bara að geta borgað reikningana mína“

reikn

Í fimm ár hef ég ekki getað farið til tannlæknis (búin að vera með tannpínu í tvö ár), ég get aldrei keypt mér föt en hér sit ég í sófanum heima hjá mér og sauma götin á buxunum mínum. Ég geri aldrei neitt með manninum mínum sem ég þrái svo heitt, ég hef ekki lengur [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Íslensk fyrirsæta í Financial Times: Myndir

edda l

Edda Óskars hjá Eskimo models fór í myndatöku í Afríku og birtist þátturinn í Financial Times. Flottar myndir!  

Ritstjórn
23.5.2012

Stjörnurnar og áhættuleikararnir þeirra

áhættuleikararforsida

Ótrúlegt, sumir áhættuleikaranna eru ekki einu sinni líkir stjörnunum en aðrir eru lifandi spegilmynd þeirra.                      

Ritstjórn
23.5.2012

10 ráð til að verða hamingjusamara foreldri

fam forsida

Það er ýmislegt á foreldra lagt. Stundum eigum við það til að gera of mikið úr hlutunum. Hér eru tíu atriði sem geta hjálpað okkur að verða hamingjusamara foreldri….sem þýðir líka að börnunum okkar mun líða betur!   Þú getur ekki haft stjórn á ÖLLU. Það er stundum í lagi að viðurkenna að þú getur [...]

Nafnlaust
23.5.2012

Játning: Taggalicius ást

jatning

Ég var í sambandi í fjögur ár og þar á undan var ég búin að deita mestu skíthæla landsins að mínu mati. Þeir notuðu mig og komu illa fram við mig en það var þegar ég var yngri. Ég hélt þetta myndi ekki koma fyrir aftur enda yfir 25 ára. Ég var í mjög traustu [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Sjóðheit prófílmynd?

se lil

Ekki kannski alveg eins og hún hafði hugsað sér hana….  

Ritstjórn
23.5.2012

Hver ætli ráði á þessu heimili?

raedur l

Þú þarft bara að líta einu sinni á myndina til að sjá það…!  

Ritstjórn
23.5.2012

Rúmfræði: Level 900

rumfr lil

Hvernig…? Bara – HVERNIG?  

Ritstjórn
23.5.2012

Mörgæsaungi vs maður

mörgæs

Hversu mikið krútt getur maður verið? Þessi litli mörgæsaungi var ekkert hræddur við að ráðast á manninn og setjast hreinlega á andlitið á honum.

Sigurveig
23.5.2012

Síðbúinn „mæðradagsbröns”

bröns

Snilldin ein frá matgæðingnum Sigurveigu Káradóttur!   Pönnuklessur: 200 gr spelt 25 gr hveitikím 25 gr hveitiklíð 2 tsk lyftiduft 50 gr hunang 200 gr eplamauk 2 egg 2 msk kókosolía – brædd á pönnu ( og svo meiri kókosolía til að steikja úr ) Þurrefnin sett saman í skál og restinni síðan blandað saman [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Uppfærðu Angry Birds

angrybirdsforsida

Það hafa flestir spilað leikinn sem en fæstir láta sig dreyma um að falla niður með þessum reiðu fuglum eða þjóta á meðal þeirra í hringekjum. Nú hafa leikjahönnuðir Angry Birds hinsvegar uppfært leikinn og fært hann inn í raunveruleikann með tilkomu skemmtigarðar sem er að sjálfsögðu tileinkaður fuglunum og óvinum þeirra. Skemmtigarðinn er að [...]