Ofurskínkur
18.01.2012 Tamar Matchavariani

Það eru margar skínkur hér á landi en svona til að byrja með; Hvað er að vera skínka? Allir hafa sína eigin útskýringu á hugtakinu en fyrir mér er skínka stelpa sem málar sig fáránlega mikið.

Sumar skínkur fara mörgum sinnum í viku í ljós, fara aldrei út án þess að hárið og make-upið sé fullkomið og ganga í þröngum fötum með brjóstaskoruna fyrir alla að sjá.

ofur inni

Chloé Mafia


Ég er ekki að segja að ALLAR skínkur séu alltaf í ljósum eða ALLAR skínkur sýni brjóstaskoruna en svona skínkur þekki ég. Ég þekki einnig skínkur sem ganga í íþróttafötum sem eru ekki endilega þröng og brjóstaskoran er hvergi að sjá. En allar skínkur sem ég þekki, hef ég ekki séð ómálaðar síðan ég man eftir þeim.

Ég hélt að eftir að ég byrjaði að horfa á Jersey Shore, myndi ég aldrei finna jafn miklar skínkur og eru í þessum þáttum. Ég hafði rangt fyrir mér. Mér leiddist rosalega mikið um daginn og ákvað að tékka á þáttum sem heita Snog, Marry or Avoid? Ég var í sjokki eftir að hafa horft á nokkra þætti.

ofur 2

Snog, marry or avoid eru breskir þættir sem snúast um að breyta algjörum sínkum eða fólki sem extreme útlit í fágað ungt fólk. Stelpurnar sem ég sá í þessum þáttum klæddu sig annaðhvort eins og algjörar druslur og máluðu sig eins og vændiskonur.

Mér finnst ekkert að því að vera skínka. Ég hef alveg pullað skínkulukkið á djamminu og fílað mig í botn þannig. En það er munur á því að vera skínka og að vera einfaldlega til skammar.

Þetta er kenningin mín : Maður er alltaf fallegastur þegar maður er með náttúrulega málingu. Það er ekki eðlilegt að mála sig á hverjum degi eins og maður sé að fara á djammið. Mér finnst eiginlega hálf vandræðalegt að sjá stelpu stífmálaða í skólanum.

Skínkur, eða fólk almennt, passiði ykkur að enda ekki svona :

ofur 1

Ritstjórn
23.5.2012

Sjóðheit prófílmynd?

se lil

Ekki kannski alveg eins og hún hafði hugsað sér hana….  

Ritstjórn
23.5.2012

Hver ætli ráði á þessu heimili?

raedur l

Þú þarft bara að líta einu sinni á myndina til að sjá það…!  

Ritstjórn
23.5.2012

Rúmfræði: Level 900

rumfr lil

Hvernig…? Bara – HVERNIG?  

Ritstjórn
23.5.2012

Mörgæsaungi vs maður

mörgæs

Hversu mikið krútt getur maður verið? Þessi litli mörgæsaungi var ekkert hræddur við að ráðast á manninn og setjast hreinlega á andlitið á honum.

Sigurveig
23.5.2012

Síðbúinn „mæðradagsbröns”

bröns

Snilldin ein frá matgæðingnum Sigurveigu Káradóttur!   Pönnuklessur: 200 gr spelt 25 gr hveitikím 25 gr hveitiklíð 2 tsk lyftiduft 50 gr hunang 200 gr eplamauk 2 egg 2 msk kókosolía – brædd á pönnu ( og svo meiri kókosolía til að steikja úr ) Þurrefnin sett saman í skál og restinni síðan blandað saman [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Uppfærðu Angry Birds

angrybirdsforsida

Það hafa flestir spilað leikinn sem en fæstir láta sig dreyma um að falla niður með þessum reiðu fuglum eða þjóta á meðal þeirra í hringekjum. Nú hafa leikjahönnuðir Angry Birds hinsvegar uppfært leikinn og fært hann inn í raunveruleikann með tilkomu skemmtigarðar sem er að sjálfsögðu tileinkaður fuglunum og óvinum þeirra. Skemmtigarðinn er að [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Mansal er algengara en við höldum: Óhugnanlegir þættir frá BBC

mansal forsida

Við höfum einstakan hæfileika til að loka augunum fyrir því hræðilega sem á sér stað á degi hverjum í heiminum. Mansal er eitt af þeim atriðum. Við lesum um mansal í bókum og dagblöðum, sjáum heimildarmyndir og vitum að það tíðkast um heim allan en það er erfitt að setja sig í spor þessa heims [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Eurovision: 1500 sinnum #12stig á Twitter

tvit

„Tíst Íslendinga voru fyndnari en breski þulurinn,“Gísli Marteinn, lögreglustjórinn í Reykjavík og forstjóri CCP meðal þeirra sem lögðu orð í belg. Mjög líflegar umræður sköpuðust um söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöða á vefsíðunni Twitter.com í kvöld. Bæði í Evrópu allri en íslenskir notendur vefsíðunnar hafa líklega aldrei verið jafn virkir í umræðunum um Eurovision.  1500 íslensk tíst [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ísland kemst áfram í Eurovision!

gretajonsi

Þau Gréta Salóme og Jónsi voru stórkostleg á sviðinu og ef marka má kosningarnar heilluðu þau ekki bara landann heldur einnig Evrópu en framlag okkar Íslendinga mun keppa í aðalkeppninni næstkomandi laugardag. Gréta og Jónsi voru númer tvö á sviðið og var atriðið þeirra svo sannarlega vel útfært. Blái liturinn á sviðinu fór laginu einstaklega [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Komast Gréta og Jónsi upp úr undanúrslitakeppninni í kvöld?

eurovision

Í kvöld munu Eurovisionfararnir okkar stíga á stóra sviðið Kristalhöllinni í Bakú og flytja framlag okkar Íslendinga til Eurovisions í ár. Þau Gréta og Jónsi munu keppa ásamt 18 öðrum löndum um þau 10 sæti sem fá að taka þátt í  undanúrslitakeppninni en löndin eru í þessari röð: Svartfjallaland: Rambo Amadeus – Euro Neuri Ísland: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ömmustig – Gamlar og krumpaðar konur á sviðinu

euro1

Eins og flestir Eurovision aðdáendur vita þá er það ekki aðeins flutningurinn á laginu sem skiptir máli heldur öll umgjörðin. Því hafa margir Eurovision áhagendur hafa tekið upp einskonar stigagjöf og fylgir sumum þeirra ansi hávær köll, skotglas og jafnvel gretta ef innihald skotglassins var bragðsterkt. En fyrir hvað á að gefa stig? Bleikt rakst [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Grillaður lax með teriyaki

lax

Sjúklega girnilegur og sumarlegur réttur fyrir þá sem veiða/þekkja veiðimenn! Mmm….grill og lax. Verður það eitthvað betra?     Fyrir 4. Innihald: 600 gr. lax, roð- og beinlaus 4 stk. Blue Dragon eggjanúðlur (200 gr.) 400 gr.wok grænmeti, ferskt eða frosið 165 ml. Blue Dragon kókosmjólk 1 stk. Blue Dragon Teriyaki Stir Fry sósa Aðferð: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Green Tea Smoothie

green tea

Nú er sumarið komið og stefnir í tveggja stiga hitatölur um helgina.  Við mælum með þessum, sem ferskur og sumarlegur með hækkandi hitastigi um allt land.   Innihald 1 frosinn banani. ½ stór hunangsmelóna, skorin í bita. ¾ úr bolla af Green Tea (notið 2 tepoka og látið standa í 10 mín ) 1 tsk. hunang. ¼ [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Er hægt að komast yfir köngulóarfóbíu?

konguloarfobia

Köngulær eru ekki öllum að skapi. Þær eru alveg fallegar..sumar en geta valdið ógurlegri hræðslu hjá fólki og stundum fylgja öskur á háa c-inu með. Ef þú ert ein/n af þeim sem þolir ekki köngulær eru þetta kannski góðar fréttir fyrir þig: Nýleg rannsókn sýnir að hægt er að breyta köngulóarfóbísku fólki í köngulóarþolendur eftir [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ekkert Eurovision í Albaníu: Þjóðin syrgir háskólanema

rutuslys

Skelfilegt slys átti sér stað í Albaníu þegar rúta, full af háskólanemum, féll 150 metra niður í stórt gljúfur nálægt borginni Himara eða um 136 km suður af höfuðborginni Tirana. Staðfest er að 12 manns hafi látið lífið og eru 25 alvarlega slasaðir. 49 kvenkynsnemendur voru í rútunni ásamt rútubílstjóranum sem virðist hafa reynt að [...]