Óhugnanleg reynsla í umferðinni
08.12.2011 Aðsendar greinar

Ritstjórn barst þessi aðsenda grein í pósti:

Á sunnudaginn var ég að aka austur fyrir fjall á leið til Þorlákshafnar. Í Þrengslunum leit ég í baksýnisspegilinn og sá bíl dálítið fyrir aftanmig. Færðin var léleg og stórir snjóskaflar alls staðar. Ég var á litlum bíl svo ég hægði á mér, enda bara búin að vera með bílprófið í mánuð.

Ég ek niður fjallið og þegar ég er komin framhjá Hveragerðisafleggjaranum sé ég að bíllinn sem var fyrir aftan mig er kominn alveg upp að mér og rýkur svo framúr í miðjum snjóskafli. Bíll var að koma á móti mér og í sömu andrá þyrlast snjórinn upp og ég sá ekki neitt. Áður en ég vissi af var ég komin yfir á hina akreinina, bíllinn sem var að koma á móti mér sveigði út af til að lenda ekki framan á þeim sem var að taka fram úr mér. Bíllinn minn valt.

Þau sem tóku fram úr mér óku bara í burt og ekkert sást til þeirra frekar. Konan sem kom úr gagnstæðri átt stoppaði og hringdi í Neyðarlínuna. Ég var föst inni í bílnum. Maður kom og dró mig út um skottið. Sjúkrabíll og lögregla komu á staðinn og ég sagði þeim alla söguna.

Að því loknu fór ég í tékk á spítala. Einhverjir verkir í baki, höfði og öxl eru ennþá að pirra mig en það sem ég vil aðallega koma á framfæri hér er að fólk gæti sín þegar það rýkur svona framúr. Þó svo að fólk kunni að aka í snjó og í lélegri færð þá eru margir úti í umferðinni nýkomnir með bílpróf. Eins og ég. Ég er ekki vön að aka í lélegri færð.

Hinir í umferðinni vita ekki hvort ég er gömul kona eða unglingur, nýkominn með bílpróf eða ekki. Ég beygði útaf til að forða slysi þar sem fleiri hefðu getað slasast. Ég beygði út af til að forða slysi þar sem fleiri hefðu getað slasast. Hver sá var sem ók fram úr mér, hefur ekki komið í ljós. Sá sem olli því að ég velti bílnum og þori enn ekki að fara út í umferðina á nú. Ég vona að fólk passi sig í þessari færð. Ef fólk gerir það er hægt að koma í veg fyrir meiriháttar slys.

Ritstjórn
23.5.2012

Sjóðheit prófílmynd?

se lil

Ekki kannski alveg eins og hún hafði hugsað sér hana….  

Ritstjórn
23.5.2012

Hver ætli ráði á þessu heimili?

raedur l

Þú þarft bara að líta einu sinni á myndina til að sjá það…!  

Ritstjórn
23.5.2012

Rúmfræði: Level 900

rumfr lil

Hvernig…? Bara – HVERNIG?  

Ritstjórn
23.5.2012

Mörgæsaungi vs maður

mörgæs

Hversu mikið krútt getur maður verið? Þessi litli mörgæsaungi var ekkert hræddur við að ráðast á manninn og setjast hreinlega á andlitið á honum.

Sigurveig
23.5.2012

Síðbúinn „mæðradagsbröns”

bröns

Snilldin ein frá matgæðingnum Sigurveigu Káradóttur!   Pönnuklessur: 200 gr spelt 25 gr hveitikím 25 gr hveitiklíð 2 tsk lyftiduft 50 gr hunang 200 gr eplamauk 2 egg 2 msk kókosolía – brædd á pönnu ( og svo meiri kókosolía til að steikja úr ) Þurrefnin sett saman í skál og restinni síðan blandað saman [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Uppfærðu Angry Birds

angrybirdsforsida

Það hafa flestir spilað leikinn sem en fæstir láta sig dreyma um að falla niður með þessum reiðu fuglum eða þjóta á meðal þeirra í hringekjum. Nú hafa leikjahönnuðir Angry Birds hinsvegar uppfært leikinn og fært hann inn í raunveruleikann með tilkomu skemmtigarðar sem er að sjálfsögðu tileinkaður fuglunum og óvinum þeirra. Skemmtigarðinn er að [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Mansal er algengara en við höldum: Óhugnanlegir þættir frá BBC

mansal forsida

Við höfum einstakan hæfileika til að loka augunum fyrir því hræðilega sem á sér stað á degi hverjum í heiminum. Mansal er eitt af þeim atriðum. Við lesum um mansal í bókum og dagblöðum, sjáum heimildarmyndir og vitum að það tíðkast um heim allan en það er erfitt að setja sig í spor þessa heims [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Eurovision: 1500 sinnum #12stig á Twitter

tvit

„Tíst Íslendinga voru fyndnari en breski þulurinn,“Gísli Marteinn, lögreglustjórinn í Reykjavík og forstjóri CCP meðal þeirra sem lögðu orð í belg. Mjög líflegar umræður sköpuðust um söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöða á vefsíðunni Twitter.com í kvöld. Bæði í Evrópu allri en íslenskir notendur vefsíðunnar hafa líklega aldrei verið jafn virkir í umræðunum um Eurovision.  1500 íslensk tíst [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ísland kemst áfram í Eurovision!

gretajonsi

Þau Gréta Salóme og Jónsi voru stórkostleg á sviðinu og ef marka má kosningarnar heilluðu þau ekki bara landann heldur einnig Evrópu en framlag okkar Íslendinga mun keppa í aðalkeppninni næstkomandi laugardag. Gréta og Jónsi voru númer tvö á sviðið og var atriðið þeirra svo sannarlega vel útfært. Blái liturinn á sviðinu fór laginu einstaklega [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Komast Gréta og Jónsi upp úr undanúrslitakeppninni í kvöld?

eurovision

Í kvöld munu Eurovisionfararnir okkar stíga á stóra sviðið Kristalhöllinni í Bakú og flytja framlag okkar Íslendinga til Eurovisions í ár. Þau Gréta og Jónsi munu keppa ásamt 18 öðrum löndum um þau 10 sæti sem fá að taka þátt í  undanúrslitakeppninni en löndin eru í þessari röð: Svartfjallaland: Rambo Amadeus – Euro Neuri Ísland: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ömmustig – Gamlar og krumpaðar konur á sviðinu

euro1

Eins og flestir Eurovision aðdáendur vita þá er það ekki aðeins flutningurinn á laginu sem skiptir máli heldur öll umgjörðin. Því hafa margir Eurovision áhagendur hafa tekið upp einskonar stigagjöf og fylgir sumum þeirra ansi hávær köll, skotglas og jafnvel gretta ef innihald skotglassins var bragðsterkt. En fyrir hvað á að gefa stig? Bleikt rakst [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Grillaður lax með teriyaki

lax

Sjúklega girnilegur og sumarlegur réttur fyrir þá sem veiða/þekkja veiðimenn! Mmm….grill og lax. Verður það eitthvað betra?     Fyrir 4. Innihald: 600 gr. lax, roð- og beinlaus 4 stk. Blue Dragon eggjanúðlur (200 gr.) 400 gr.wok grænmeti, ferskt eða frosið 165 ml. Blue Dragon kókosmjólk 1 stk. Blue Dragon Teriyaki Stir Fry sósa Aðferð: [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Green Tea Smoothie

green tea

Nú er sumarið komið og stefnir í tveggja stiga hitatölur um helgina.  Við mælum með þessum, sem ferskur og sumarlegur með hækkandi hitastigi um allt land.   Innihald 1 frosinn banani. ½ stór hunangsmelóna, skorin í bita. ¾ úr bolla af Green Tea (notið 2 tepoka og látið standa í 10 mín ) 1 tsk. hunang. ¼ [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Er hægt að komast yfir köngulóarfóbíu?

konguloarfobia

Köngulær eru ekki öllum að skapi. Þær eru alveg fallegar..sumar en geta valdið ógurlegri hræðslu hjá fólki og stundum fylgja öskur á háa c-inu með. Ef þú ert ein/n af þeim sem þolir ekki köngulær eru þetta kannski góðar fréttir fyrir þig: Nýleg rannsókn sýnir að hægt er að breyta köngulóarfóbísku fólki í köngulóarþolendur eftir [...]

Ritstjórn
22.5.2012

Ekkert Eurovision í Albaníu: Þjóðin syrgir háskólanema

rutuslys

Skelfilegt slys átti sér stað í Albaníu þegar rúta, full af háskólanemum, féll 150 metra niður í stórt gljúfur nálægt borginni Himara eða um 136 km suður af höfuðborginni Tirana. Staðfest er að 12 manns hafi látið lífið og eru 25 alvarlega slasaðir. 49 kvenkynsnemendur voru í rútunni ásamt rútubílstjóranum sem virðist hafa reynt að [...]