Undanfarin ár hefur verið haldið upp á gamlar hefðir í Gerðubergi og öskudagsböllin endurvakin. Húsið hefur fyllst af kátum krökkum, héðan og þaðan úr bænum og skemmt sér konunglega.
Foreldrar er hvattir til að koma með börnin sín og dansa og syngja með starfsfólkinu.
Að þessu sinni mun Edda Borg og hljómsveit leika fyrir dansi og spila sígild barnalög. Einnig kemur John Tómasson töframaður og sýnir sín landsþekktu töfrabrögð. Í lokin verður kötturinn sleginn úr tunnunni á torginu við Gerðuberg og Miðberg. (allir að vera með góðar úlpur og húfur með sér, það getur orðið kalt að standa úti).
Og að sjálfssögðu er ókeypis! Ballið verður haldið miðvikudaginn 22. febrúar kl. 14-16 í samstarfi við frístundamiðstöðina Miðberg.




















