Alexandra Sif er 23 ára gömul og leggur stund á fitness íþróttina. Hún hefur æft í nokkra mánuði og náði ótrúlegum árangri á alþjóðlegu móti sem haldið var í Bandaríkjunum fyrir stuttu og var meðal 10 efstu keppenda í sínum flokki, en hún keppti í Bikini Model flokki. Bleikt náði tali af Alexöndru og lagði nokkrar spurningar fyrir stúlkuna.
Hvað ertu búin að vera lengi að æfingum?
Ótrúlegt en satt: Ég hef bara verið að lyfta almennilega í 6 mánuði. Hér áður lagði ég megináherslu á brennslu og þorði aldrei að prófa lyftingar því ég kunni það ekki almennilega. Ég var smá smeyk við að fara í lyftingasalinn í ræktinni.
Hvernig kviknaði áhuginn á líkamsrækt?
Ég hef alltaf verið í íþróttum. Ég æfði meðal annars listskauta í mörg ár og hef alltaf verið dugleg við að hreyfa mig. Ég gat lengi vel ekkert æft út af bakmeiðslum en þegar ég byrjaði með kærastanum mínum fyrir 3 árum þá kviknaði aftur áhugi minn á ræktinni. Kærastinn minn hefur mikinn áhuga á öllu því sem snýr að þessu íþróttaformi og það var mér mikil hvatning.
Ég hafði alltaf haft mikinn áhuga á Fitness en þorði ekki að láta verða af þessum draumi fyrr en sl. haust. Þá tók ég þá ákvörðun að ég þyrfti að bæta á mig smá vöðvamassa. Ég ákvað að fara til hinnar stórglæsilegu Katrínar Evu sem er með fjarþjálfun á betriarangur.is . Þegar ég leitaði til Katrínar hafði ég fylgst lengi með henni í ræktinni og dáðist að henni. Katrín er einmitt margfaldur vinningshafi í þeirri íþrótt sem ég æfi.
Hefur þú tekið þátt í mörgum mótum?
Upphaflega ætlaði ég ekki að taka þátt fyrr en á Íslandsmeistaramótinu sem fer fram núna um páskana. Katrín hafði þó mikla trú á mér og það var hún sem hvatti mig til þess að taka þátt í Expó Bikarmeistaramótinu, sem fram fór í nóvember sl. Ég lét slag standa og tók þátt eftir að hafa æft í einungis í rúma tvo mánuði. Ég náði gríðarlegum árangri í uppbyggingu miðað við stuttan tíma.
Þegar ég keppti á Arnold mótinu var ég því að stíga í annað sinn á svið.
Þú kepptir á öðru stærsta fitness móti í heimi fyrir stuttu: Arnold Classic. Hvernig kom þátttakan til?
Katrín, sem er þjálfarinn minn, fór sjálf fyrir ári síðan og tók þátt í Figure mótinu sem er svipað fitnessinu hérna heima. Hún vann í sínum flokki á því móti. Þegar ég hitti Katrínu fyrst, nefndi hún strax möguleikann við mig en ég leiddi ekki hugann að því strax.
Eftir þáttöku mína á mótinu í nóvember hélt ég einfaldlega áfram að æfa og tók að einbeita mér að því að byggja líkamann enn betur upp. Katrín hélt áfram að ýta hugmyndinni að mér, en ég hafði ekki nógu mikla trú á sjálfri mér til að taka undir með henni. Á endanum hugsaði ég þó: „Ef Katrín hefur nógu mikla trú á mér, af hverju ætti ég þá ekki að hafa það líka?“ Þannig að ég sló á endanum til og tók stefnuna á mótið.
Nú kepptir þú í Bikini Model flokki á Arnold Classic mótinu: Hvað stendur upp úr þeirri keppni þegar þú lítur til baka?
Ég hef lært alveg óteljandi hluti sem eiga eftir að nýtast mér vel í framtíðinni, bæði andlega og líkamlega. Þetta var risastór upplifun. Algjört ævintýri. Þar stendur ekkert eitt upp úr fremur en annað, þetta var allt skemmtilegt. Þarna fór fram stór vörusýning á sama tíma þar sem allar helstu stjörnurnar í þessum bransa komu fram. Þá var bæði keppt í „amateur“ og „pro“ flokkum. Sýningin kringum þetta var ótrúlega flott. Auðvitað kynntist ég svo öðrum íslendingum á mótinu og yfir höfuð var fólkið á sýningunni bara yndislegt.
Auðvitað stendur þó árangurinn sem ég náði, framar öllu. Mér finnst það eitt að komast í topp 10 sæti af rúmlega 40 keppendum í mínum flokki ákveðinn sigur út af fyrir sig. Þetta var í annað skipti sem ég tek þátt í svona keppni og það á svona stóru móti.
Er stefnan sett á fleiri mót á næstunni?
Ég ætla að taka þátt í módelfitness hér heima á Íslandsmeistaramótinu um páskana.
Hvaða ráð hefur þú handa ungum stúlkum sem hafa áhuga á fitness og vilja hefja ferilinn?
Að láta verða af þessu og fá almennilega aðstoð við að koma sér vel af stað. Það skiptir miklu máli að borða rétt og nógu oft. Og þá skipta æfingar líka öllu máli. Það eitt að hafa trú á sjálfri sér, að búa yfir metnaði og þrjósku eru nauðsynlegir eiginleikar. Sumar stelpur halda að þær verði svakalegar með því einu að lyfta nógu mikið, en það er þó alls ekki raunin. Í raun eru æfingarnar mikil vinna en þær eru algerlega þess virði. Það er miklu fallegra að hafa smá vöðva.




















