Páll Óskar Hjálmtýsson segir að við verðum að hætta meðvirkninni og setja mörk þegar mannréttindi séu brotin eins og hann lýsir í bréfi á Facebooksíðu sinni sem birtist fyrir stundu. Hvetur hann Pál Magnússon til að afþakka þátttöku Íslands í Eurovisionkeppninni í ár vegna mannréttindabrota yfirvalda í Aserbaídsjan.
Borgaryfirvöld í Aserbaídsjan byggja núna Kristalshöll og önnur glæsihýsi fyrir Eurovision keppnina, með því að reka bláfátækt fólk með valdi útúr hreysum sínum og jafna svo heimili þeirra við jörðu. Lokað er fyrir rafmagn, gas og vatn í íbúðunum ef fólk drullar sér ekki þaðan út, því hús þeirra eru ekki lengur til í opinberum skjölum. Bæturnar sem fólkinu er boðið eru helmingi lægri en markaðvirði eigna í miðborginni, og nægja því aðeins fyrir lítilli íbúð fyrir utan borgina. Sem sagt, fátæka fólkið er neytt til að fara sem lengst burt frá Bakú. Þegar fréttamenn BBC höfðu samband við borgaryfirvöld, vildi enginn veita viðtöl um málið og strax er skellt á þau um leið og minnst var á þetta mál. Þessa frétt heyrði ég í Speglinum á Rás 1.
Hér eru borgaryfirvöld í Aserbaídsjan að brjóta klárlega á mannréttindum þegna sinna. EBU (European Broadcast Union) sem heldur keppnina, sendi frá sér lélega afsökun eða yfirlýsingu í dag. Þar ætla þau sér ekki að gera neitt sérstakt í málinu, Eurovision keppnin verður haldin í óbreyttri mynd, vegna þess að a) Eurovision hefur engar pólítskar skoðanir – er þverpólítisk keppni b) Eurovision á að vera sameiningartákn, ekki sundrungartákn c) Eurovision er svokallað „force of good“ sem byggir brýr landa á milli í stað þess að brjóta þær niður. Þau vilja frekar að keppnin sé haldin í landi þar sem mannréttindi eru brotin – í þeirri von að kastljósinu verði þá frekar beitt að brotunum sem annars kæmu aldrei fram í dagsljósið. Mjög dipló og flöffí yfirlýsing.
Afsakið mig, EBU – þetta er mjög léleg afsökun fyrir því að láta mannréttidabrot viðgangast og setja engin mörk. Alger aumingjaskapur. Mannréttindabrot blómstra í þegjandi þögninni. ÞAÐ EINA SEM ILLSKA ÞARF TIL AÐ ÞRÍFAST – ER AÐ GÓÐIR MENN GERI EKKI NEITT.
Söngvakeppni Sjónvarpsins verður haldin í Hörpu núna á laugardaginn 11. Feb. Ég á að vera kynnir þar ásamt Brynju Þorgeirsdóttur. Ég ætla að kynna þessa keppni sem Söngvakeppni Sjónvarpsins á RÚV, og ekki minnast einu orði á Aserbaídsjan. Ég vil kynna þessa keppni og standa mína plikt af virðingu við listamennina og starfsfólk RÚV sem ég hef alltaf átt gott samstarf með. Þau hafa ekkert með Aserbaídsjan að gera.
Ég ræddi við Pál Magnússon hjá RÚV í dag. Hann ræður ferðinni og getur tekið afdrifaríkar ákvarðanir. Við erum sammála um það að Söngvakeppni Sjónvarpsins og Eurovision í Bakú eru tveir ólíkir hlutir. Takið eftir því að flestar þjóðir út í Evrópu halda sínar eigin söngvakeppnir, en lögin eru ekkert endilega eyrnamerkt Eurovision. Í Svíþjóð heitir keppnin einfaldlega „Melodi-festivalen“ o.s.frv. Engar reglur eru til um það hvernig þjóðirnar velja lögin sem taka þátt í Eurovision. Þjóðirnar ráða því sjálfar.
Ég hef nú þegar hvatt Pál Magnússon til að afþakka þátttöku Íslands í Eurovision í Bakú. Ég vona að hann geri það og taki þessari áskorun minni. Listamaðurinn sem vinnur keppnina á laugardaginn getur líka afþakkað ferðina sjálfur ef hann vill.
Ást og friður, PÁLL ÓSKAR




















