Regína Ósk söngkona minnist Whitney Houston sem frábærrar söngkonu sem skilur eftir sig lög sem allir í heiminum kunna og elska.
„Ég held hún hafi samt verið svakalega óhamingjusöm í einkalífinu,“ segir Regína. „Hún giftist Bobby Brown sem stóð ekki alveg með henni. Með honum eignaðist hún þó einkadótturina sem var örugglega það eina sem hélt í henni lífinu.“
Eiginleg dánarorsök hefur ekki verið gefin út en það kæmi Regínu ekki á óvart að það hefði eitthvað með lyf að gera: „Hún ætlaði að vera með „comeback“ í fyrra sem floppaði algerlega þar sem hún var eiginlega búin að missa röddina og leit alveg hrikalega út.“
Regína minnist listar Whitney sem frábærum listamanni: „Hennar verður minnst um allan heim sem frábærum listamanni. Uppáhaldsplatan mín með henni er platan My Love is Your Love sem hún gerði með Fugees gæjanum. Geggjuð plata sem ég set reglulega á – sérstaklega þegar ég er að þrífa.
Megi hún hvíla í friði.“




















