Það þarf vart að kynna söngvarann Magna fyrir þjóðinni en margir muna eftir honum úr hljómsveitinni Á móti Sól og úr Supernova. Magni stígur á svið í Hörpunni næsta laugardag og syngur lagið Hugarró ásamt fríðu föruneyti, en hvaða strákar eru þetta sem spila með Magna?
Fyrst ber að nefna höfund lagsins, Svein Rúnar Sigurðsson. Sveinn Rúnar er mikill reynslubolti, hann hefur átt 10 lög í undankeppnum Eurovisions og tvö af þeim hafa keppt fyrir Íslands hönd, lagið Heaven í flutning Jónsa og Valentine Lost sem Eiríkur Hauksson flutti svo eftirminnilega. Sveinn Rúnar er ekki aðeins fullur afvisku og reynslu heldur starfar hann einnig sem læknir á Heilsugæslunni í Árbæ.

Næstur er það gítarleikarinn Rólant Dahl. Rólant leikur á gítar við lagið en gítarinn er ekki það eina sem þessi hressi strákur leggur fyrir sig heldur er hann, eins og Sveinn Rúnar, einnig læknir á heilsugæslunni í Árbæ ásamt því sem hann passar upp á ungliðana okkar í knattspyrnu en hann sér um U17 og U19.
Stefán Þór Steindórsson mun manna annan gítarinn en Stefán hefur áður farið út fyrir Íslands hönd og þá með Eiríki Haukssyni. Stefán segir að ferðin sú hafi verið stórfengleg og hann langi mikið út aftur. Enda skemmtileg reynsla og ekki skemmir hversu samrýndur hópurinn er.
Þriðji gítarleikarinn er enginn annar en Einar Þór Jóhannsson. Einar er oft kenndur við hljómsveitirnar Buff og Dúndurfréttir en hann hefur leikið með öllum sem skipta einhverju máli í íslensku tónlistarlífi.

Síðastur en alls ekki sístur er það Ágúst Íbsen. Hann ætlar að gæla við bassann á laugardagskvöldið en hann segir lagið vera slíkt að allir geti tengst því á sinn hátt. Ágúst, eins og Sveinn Rúnar og Rólant, er einnig í læknisfræðinni en hann er á þriðja ári.
En fer þetta saman? Eurovision og læknisfræði?
„Já.“ Segja strákarnir einróma. „Þú læknar í gegnum bæði tónlist og læknisfræði“ bæta þeir svo við.
Við óskum strákunum góðs gengis og hlökkum til að fylgjast með keppninni á laugardaginn.




















