VÍS, Hamborgarafabrikkan og Hemmi Gunn styrktu SÁÁ um hálfa milljón í dag en Hemmi Gunn afhentiHamborgarafabrikkunni Góða Gítarinn til varðveislu um ókomna tíð en Góði Gítarinn er hljóðfæri sem skartar eiginhandaráritunum á þriðja hundrað íslenskra tónlistarmanna.
Á sama tíma afhenti VÍS, verndari verkefnisins, Þórarni Tyrfingssyni, yfirlækni SÁÁ, hálfa milljón króna sem rennur óskipt til unglingastarfs SÁÁ.
„Gott mál! Sannarlega þörf á að passa upp á unga fólkið á þessum síðustu og verstu tímum. Þessi stuðningur kemur sér sérstaklega vel og gefur okkur tækifæri að vekja athygli á nýrri og aukinni göngudeildarþjónustu í Von við Efstaleiti fyrir unglinga sem vilja taka sig á og þurfa ekki að fara á Vog“, segir Þórarinn Tyrfingsson,yfirlæknir SÁÁ.
VÍS er verndari Góða gítarsins og kemur að verkefninu með sérlega myndarlegum hætti. Framlag VÍS til verkefnisns, hálf milljón króna, rennur óskipt til unglingastarfs SÁA. „Við teljum verkefnið afskaplega verðugt og vonum að styrkurinn nýtist vel í því mikilvæga starfi sem unnið er í forvörnum unglinga hjá SÁÁ“, segir María Hrund Marinósdóttir, markaðsstjóri VÍS
Góði gítarinn loksins búinn að láta gott af sér leiða
„Þegar við gerðum Það var lagið þættina á Stöð 2 datt okkur strax í hug að kaupa gítar og fá alla tónlistarmennina sem komu í þáttinn til að árita hann. Ég sá alltaf fyrir mér að þessi gítar gæti á einhvern hátt komið SÁÁ til góðs. Með hjálp VÍS og Hamborgarafabrikkunnar hefur það tekist og það er frábært“ segir Hemmi Gunn sem stýrði heilum 70 þáttum af Það var lagið á sínum tíma. Fjórir tónlistarmenn komu fram í hverjum þætti og nærri lætur að meginþorri íslenskra tónlistarmanna hafi ritað nafn sitt á Góða gítarinn.
Góði gítarinn hefur fengið öndvegissess á Hamborgarafabrikkunni, í glerskáp við innganginn, þar sem gestir Fabrikkunnar geta virt hann fyrir sér frá öllum hliðum og glímt við að ráða í hinar fjölmörgu eiginhandaráritanir sem á honum eru.
„Það er okkur á Fabrikkunni sannur heiður að fá að varðveita þennan merka gítar. Fabrikkan hefur frá upphafi tekið afstöðu með íslenskri tónlist og tónlistarmönnum. Við leikum eingöngu íslenska tónlist og höldum reglulega tónleika. Svo er Fabrikkan frumkvöðull þegar kemur að STEF greiðslum en greiðslum Fabrikkunnar er úthlutað til lagahöfunda og flytjenda í réttu hlutfalli við tónlistarspilunina á staðnum“ , sagði Jóhannes Ásbjörnsson, einn eigenda Hamborgarafabrikkunnar.




















