Safnanótt verður haldin í kvöld, föstudagskvöld, frá sjö til miðnættis. Fjölmargar sýningar verða í boði og kostar ekkert inn á þær. Safnabeltið er líka kynnt nú í fyrsta sinn en það er búið ýmisskonar verkfærum sem gerir heimsókn fjölskyldunnar í söfnin að nýrri upplifun og skemmtilegum leik.
Fjölmargt verður á dagskrá í söfnum borgarinnar. Í Hafnarhúsi verður töfrandi ljósagjörningur í fjölnotasal og á Kjarvalsstöðum býður Heimilsiðnaðarfélagið upp á prjónakaffi og Skotthúfurnar sjá um harmonikkuleik. Unga kynslóðin ræður ríkjum í Ásmundarsafni en þar leita nemendur Klassíska listdansskólans eftir innblæstri í verkum Ásmundar og vonarstjarna íslenskra hljómsveita, White Signal, treður upp. Ókeypis strætó gengur á milli allra safna sem taka þátt í Safnanótt þetta kvöld.
Í tilefni af Vetrarhátíð verður aðgangur ókeypis fyrir ungt fólk að 25 ára aldri laugardaginn 11. febrúar.
Á Safnanótt fer fram kynning á nýjung í íslensku safnastarfi í Ásmundarsafni klukkan sjö, á Kjarvalsstöðum klukkan átta og í Hafnarhúsi klukkan níu en þessi nýjung er Safnabelti fjölskyldunnar. Við Safnabeltið hangir taska sem er útbúin allskonar „verkfærum“ sem er ætlað að hjálpa fjölskyldusafngestum að upplifa listaverkin og söfnin á eigin forsendum. Safnabeltið stendur gestum til boða í öllum húsum safnsins og er ókeypis. Hönnuður og hugmyndasmiður Safnabeltisins er Alma Dís Kristinsdóttir, verkefnastjóri við Listasafn Reykjavíkur.




















