Heilsan er landsmönnum ofarlega í huga og fengum við því stelpurnar á HaPP til að birta nokkrar frábærar uppskriftir á Bleikt. Hér er ein með stórkostlegu salati sem kitlar bragðlaukana:
Birkifræsósa
· 1 ½-2 dl hrásykur
· 1 tsk sinnepsduft
· 1 tsk salt
· 3/4 dl eplaedik
· 2 msk fínsaxaður skallottulaukur
· 2 ½ dl bragðlítil ólívuolía eða repjuolía
· 4 tsk birkifræ
1. Setjið fyrstu fimm hráefnin í matvinnsluvél og maukið.
2. Hellið olíunni í mjórri bunu á meðan vélin er í gangi.
3. Blandið birkifræjunum saman við og hrærið með skeið.
Samsetning
· 4 handfyllir ferskt salat að eigin vali
· 1 agúrka, skorin í örþunnar sneiðar langsum með mandólíni
· 1 grænt epli, skorið smátt
· ¼ lítil melóna að eigin vali, skorin smátt
· ½ rauð paprika, skorin smátt
· ½ gul paprika, skorin smátt
· 1 handfylli jarðarber, skorin smátt
· 1 lárpera, skorin smátt
· 1 handfylli fetaostur
· ½ handfylli mynta, fínsöxuð
· ½ handfylli valhnetur, saxaðar
1. Setjið handfylli af fersku salati á fjóra diska. Myndið hring með salatinu.
2. Leggið agúrkusneiðarnar meðfram salathringnum svo úr verði veggur sem myndar hring.
3. Skiptið grænmeti, ávöxtum, hnetum, osti og berjum niður á diskana.
4. Berið fram með salatsósunni.




















