Daníel Óliver: „Draumaprinsinum mætti svipa til George Clooney“
17.02.2012 Heiðrún Finnsdóttir

Söngvarinn og lagahöfundurinn Daníel Óliver er flestum orðin kunnugur en hann hefur gert það gott í danstónlistinni upp á síðkastið. Nú hefur hann kvatt klakann og flutt til Stokkhólms þar sem hann hugar að tónlistinni, ástinni og lífinu. Daníel ræddi við okkur um lífið, samkynhneigðina og auðvitað tónlistina.

Hvað ertu að gera úti í Svíþjóð?

Ég flutti hingað í október á síðasta ári með það að markmiði að hefja sólóferil. Hér er stór markaður fyrir popptónlistamenn og mikið af tækifærum og ég er alveg á því að mér muni ganga vel hérna. Ég er þegar búinn að bóka nokkra tónleika með vorinu svo ég hlakka bara til að takast á við Svíþjóð. Svíar virðast taka mér mjög vel svona við fyrstu sýn.

Hvenær hófst tónlistaferillinn?

Hann hófst að einhverju ráði árið 2010 þegar ég gaf út lagið Dr. Love og tónlistarmyndband sem fékk talsverða umfjöllun og athygli. Síðan þá hef ég komið fram út um allt land og gefið út nokkur lög sem hafa farið í spilun í útvarpi.

Semur þú lögin og textana sjálfur?

Stundum og stundum ekki. Ég hef gaman að því að vinna með mismunandi laga og textahöfundum. Ég á nokkur lög sjálfur og svo hef ég samið með öðrum líka, t.d. samdi Örlygur Smári lagið mitt, Superficial sem kom út síðasta sumar. Ég samdi sjálfur Dr. Love lagið en það vann m.a. ljótulagakeppni X-977 á sínum tíma svo ég er þess viss um að ég geti samið frábæra hittara ;)

Stefnir þú að sólóplötu?

Já, ég stefni klárlega á plötu núna. Ég var ekki tilbúinn að gefa út plötu þegar ég bjó á Íslandi bæði því markaðurinn er mjög lítill og danspopptónlist eins og ég er að gera er ekki almennilega búin að ryðja sér til rúms heima. Ég var heldur ekki kominn með nógu stóran hlustendahóp til að þora að fara út í slíka fjárfestingu en núna er ég að stefna á plötu.

Hvaða tónlistarmenn hafa mótað þig mest?

Það eru rosalega margir en þeir sem hafa mótað mig hvað mest eru Michael og Janet Jackson, Toni Braxton og Britney Spears. Klárlega!

Hefur þú alltaf vitað að þú sért samkynhneigður?

Ég hef alltaf vitað að það var eitthvað öðruvísi við mig en aðra stráka. Ég var í kringum 18 ára þegar ég áttaði mig almennilega á því og fór að vinna í sjálfum mér og þeirri staðreynd að ég væri gay og gæti ekki breytt því. Ég var tvítugur þegar ég kom út og þvílíkur léttir. Lífið varð strax miklu auðveldara og allir tóku mér mjög vel…enda kom það engum á óvart held ég..

Undanfarna daga hefur umfjöllunin snúist um vanlíðan hjá samkynhneigðum unglingum, hvernig leið þér á unglingsárunum?

Ég man þegar ég var krakki og heyrði orðið hommi í fyrsta skipti. Þá spurði ég vini mína hvað það væri að vera hommi og þeir sögðu: „Það er svona perri sem nauðgar litlum strákum.“ Ísland er mjög framarlega í dag varðandi mannréttindi samkynhneigðra og fólk hér veit almennt meira um samkynhneigð en það gerði áður fyrr og við vitum mun meira en aðrar þjóðir. Mér þykir auðvitað hrikalegt að lesa um öll sjálfsvígin sem eiga sér stað vegna fordóma og ég vona að heimurinn fari batnandi. Það er 2012, við eigum ekki að þurfa að lesa svona fréttir lengur. Við erum öll eins.

Finnur þú fyrir fordómum í garð samkynhneigðra?

Ég verð var við allskonar fordóma í samfélaginu. Ég man t.d. að ákveðinn einstaklingur með mikil völd innan tónlistargeirans sagði mér að það væri alveg nóg að hafa Haffa Haff og Pál Óskar. Það væri ekki „markaður“ fyrir fleiri homma í tónlist. Mér fannst það bæði móðgandi og fyndið og leiddi það að sjálfsögðu hjá mér. Annars er ég býsna opinn um mína samkynhneigð og það hefur ekki komið mér í vandræði ennþá að vera samkynhneigður en kannski er það bara af því ég er svo fjallmyndarlegur.

Er munur á því að vera hommi á Íslandi og hommi í Svíþjóð?

Nei, ég held að það sé bara svipað…Svíar eru þó mun fíngerðari en Íslendingar að mínu mati og það er erfitt að gera grein á milli gagnkynhneigðra og samkynhneigðra karlmanna hér í Stokkhólmi.

Hvernig er draumaprinsinn?

Ég er búinn að svara þessari spurningu oft og mörgum sinnum og hún breytist í hvert skipti. Í dag er draumaprinsinn tryggur og traustur, fjárhagslega stöðugur og það skemmir ekki ef honum svipar til George Clooney. Ég á lausu í dag, en ég er samt að „deita“ í augnablikinu.

Hvað er það sem þarf til að láta draumana rætast?

Ég trúi að maður geti allt ef maður setur sér raunhæf markið og haldi sig við þau. Það er líka alltaf mikilvægt að trúa á sjálfan sig og bera virðingu fyrir þeim hæfileikum sem maður fæðist með. Það er ástæða fyrir því að við höfum þá, trúi ég. Ég ætlaði mér upprunalega að verða kokkur en ég er alveg staðfastur á því í dag að ég sé að gera það sem mér var ætlað að gera. Ég ætla alla leið, annað kemur ekki til greina.

Ritstjórn
21.5.2012

Grínið varð dauðans alvara: Settu barnið í þvottavél sem fór í gang

tvottavel barn forsida

Foreldrarnir sem sjást á myndbandinu hugsuðu ekki út í afleiðingar þess að setja barnið í þvottavél í þvottahúsi. Faðir barnsins setur það inn en gætir ekki að því að þvottavélin læsist sjálfkrafa og fer hún í gang með barnið inn í. Magnþrungnar sekúndur líða eins og sjá má. Vert er að taka það fram að [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Hin 12 ára Ásta Petrea syngur Halelujah: Myndband

haleluja

Ótrúlega góð og einungis 12 ára gömul! Ásta Petrea syngur hér þetta fallega lag, Halelujah  

Ritstjórn
21.5.2012

Hvar verður barnið þitt í sumar? Námskeið fyrir bráðger börn

genius

Ad Astra er lítið fyrirtæki sem hefur áhuga á að efla menntun á Íslandi. Þau leggja sig fram við að koma til móts við bráðger og námsfús börn. Frá árinu 2007 hafa verið haldin námskeið fyrir þessi börn en þá á vorin og haustin. Núna eru þau að fara af stað með nýtt og spennandi [...]

Ritstjórn
21.5.2012

28 ára maður lét lífið undir lyftingalóðum

lyftingalod

Chris Bailey fannst látinn í bílskúrnum heima hjá sér eftir að hafa lyft of þungum lóðum einn síns liðs. Bailey hafði keypt bekkinn fyrir nokkrum vikum til að spara pening og þurfa ekki að kaupa sér kort í líkamsræktarsal.     Daily Mail greinir frá því að síðast hafi sést til Bailey á leið inn [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Magnaður brúðkaupsdans: Myndband

brudkaupsdans

Bíddu eftir því….! Æðislegt  

Ritstjórn
21.5.2012

Anchorman 2 á leiðinni: Myndband

ancorman

Á leiðinni er ný mynd með Will Ferrel þar sem hann fer væntanlega á kostum sem fréttamaðurinn Ron Burgundy. Snilld!  

Aðsendar greinar
21.5.2012

Við viljum að áfengisaldurinn verði lækkaður

afnegi

Neysla og sala á áfengi hefur verið leyfileg á Íslandi síðan á síðustu öld. Árið 1998 tóku í gildi ný áfengislög. Samkvæmt þeim er óheimilt að selja eða veita þeim áfengi sem ekki hefur náð 20 ára aldri. Við erum fjórar stelpur á fyrsta ári í framhaldsskóla og við viljum að þessi lög verði endurskoðuð [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Kastað til bata: Jóhanna segir frá rúllettunni við krabbameinið

johanna krabbamein

Ég er ein af þessum konum sem ná fertugsaldri og fá heimsent bréf um að fara  í 40ára brjóstamyndatöku hjá Krabbameinsfélaginu. Grunlaus með öllu mæti ég niður í Skógarhlíð í myndatöku og fannst ég nú lítið hafa að gera þarna niðureftir. En stuttu seinna er hringt og ég beðin að koma í nánari skoðun þar [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Kjörís Beibís – Auglýsingar frá aðdáendum Kjöríss

kjorisforsida

Guðni Reynir Þorbjörnsson og Bjarki Þór Guðmundsson eru miklir aðdáendur Kjöríss, í raun eru þeir svo miklir aðdáendur að þeir hafa opnað Facebooksíðu tileinkaða ísnum og þar birta þeir nýja auglýsingu fyrir ísinn á hverjum fimmtudegi. Framtakið hefur fengið góð viðbrögð og vinirnir áræddu því að ganga enn lengra og sömdu nýjan texta við lagið [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Óheppileg staðsetning

stadsetn lil

…hvernig sem á það er litið!!  

Nafnlaust
21.5.2012

Játning: Hvað með dónalegt kassastarfsfólk?

waiting

Eftir að hafa lesið nokkrar játningar frá fyrrverandi (eða núverandi) kassastarfsfólki, um hversu ómögulegt fólk yfir höfuð er og hversu mikið dónaskapurinn fer með brostin hjörtu þeirra, þá gat ég nú ekki annað en komið með hinn pólinn á þetta… þ.e. kassastarfsfólk sem er með dónaskap. Dónaskapur þarf ekki að einskorðast við að orðum sé [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Djúsí svefn!

djusi lil

Væri maður ekki sísvangur í þessu rúmi?  

Ritstjórn
21.5.2012

Hvað sérðu á laufblaðinu?

camo lil

Sérðu það…?     Þessi lirfa verður í raun að fiðrildi. Náttúran er ótrúlega mögnuð!  

Ritstjórn
21.5.2012

Misheppnaðar brúðkaupsmyndir

giftingforsida

Nei hættu nú alveg… Þessar brúðkaupsmyndir eru hver annarri verri, hvað var fólkið að hugsa?                      

Ritstjórn
21.5.2012

Bláa lónið á Galapagoseyjum

galapagos lil

Ah, þeirra lítur svona út!  

Ritstjórn
21.5.2012

Kíkt á nígerísk brúðkaup: 400 gestir eru ekki neitt!

nig fors

Gestalistinn telur oft 2000 manns! Nígerísk brúðkaup eru að verða ein stærsta framleiðsla þessa afríkuríkis. Brúðkaupin eru litrík, hugmyndarík og mikið er um að vera. Yemi Osunkoya er brúðarkjólahönnuður og það er meira en nóg að gera hjá honum, samkvæmt CNN. „400 gestir í einu brúðkaupi telst ekki mikið. Því fleira fólk sem mætir, því [...]