Sigríður Guðmarsdóttir: „Lengi hafa viðgengist skammarlega lágir dómar við kynferðisbrotum“
21.01.2012 Ritstjórn

Sigríður Guðmarsdóttir, prestur í Guðríðarkirkju, er sú fyrsta sem hefur boðið sig fram til biskups. Hún ætlar að verða biskup sem tekur til hendinni, talar til þjóðarinnar um trúna og innstu gildi og stendur fyrir opna stjórnsýslu og lýðræði.

„Ég ætla að vera biskup sem sinnir söfnuðunum og hinu trúarlega starfi af frumkvæði, áhuga og gleði,“ segir Sigríður.

Hvað finnst þér um staðgöngumæðrun? Á að leyfa staðgöngumæðrun (alveg eða í velgjörðarskyni)? Hvað finnst þér um fóstureyðingar?

Margt er ólíkt með þessum tveimur siðferðilegu álitamálum. Staðgöngumæðrun og fóstureyðingar eiga það hins vegar sameiginlegt að snúast um líkama kvenna og ákvörðunarrétt þeirra yfir honum. Ég styð rétt kvenna til fóstureyðingar, en tel líka að fóstureyðingar séu alltaf neyðarúrræði.

Tillaga var samþykkt í gær um Alþingi í gær um að Alþingi skipi starfshóp til að vinna að lagafrumvarpi um staðgöngumæðrun í velgjörðarskyni. Þjóðmálanefnd íslensku Þjóðkirkjunnar undir forystu Baldurs Kristjánssonar, Sólveigar Önnu Bóasdóttur og Sigrúnar Óskarsdóttur setti saman ítarlegt álit á staðgöngumæðrun þar sem lagst er gegn því að farið sé hratt í gegnum þetta ferli.

Ég tek undir þetta álit sem má finna á síðu Þjóðkirkjunnar. Ég hafna staðgöngumæðrun sem greitt er fyrir og hygg að svo sé um flesta Íslendinga.

Hvaða stefnu finnst þér að kirkjan eigi að hafa í kynferðisbrotamálum?

Þjóðkirkjan hefur skýra stefnu í kynferðisafbrotamálum og hefur á að skipa fagráði fyrir um meðferð kynferðisafbrots og áreitni ef einhver starfsmann kirkjunnar hafa á sér brotið. Ég þyrfti því ekki að búa til stefnuna en ég þyrfti að leggja áherslu á að okkar góðu stefnu sé fylgt.

Eru íslenskt þjóðfélag að taka nógu sterkt á þessum brotum, til dæmis dómstólarnir?

Það hafa lengi viðgengist skammarlega lágir dómar við kynferðisbrotum á Íslandi, en vonandi er það að breytast.

Hvernig finnst þér skólakerfið taka á eineltismálum svona heilt yfir?

Það er erfitt að fullyrða um skólakerfið í heild, víða er verið að halda vel utan um fræðslu og þau sem verða fyrir einelti og síður á öðrum stöðum. Betur má ef duga skal.

Íslendingar vöktu athygli fyrir framgöngu í jafnréttismálum fyrir nokkrum áratugum. Hvernig finnst þér jafnréttismálin standa í dag?

Margt finnst mér ganga mjög vel og annað miður. Ég hef áhyggjur af vaxandi klámvæðingu, ofbeldi gegn konum og hversu hægt gengur að afnema launamun kynjanna. Ég held að það væri mjög jákvætt fyrir jafnréttisbaráttuna ef kona yrði biskup, því að á Norðurlöndum er aðeins eitt land þar sem kona hefur ekki verið vígð biskupsvígslu. Það er Ísland og nú er kominn tími til að breyta því.

Ritstjórn
18.5.2012

Hátíð í Útilíf á morgun: Gjafir, vinningar, dans og tilboð!

easy forsida 2

Mikið verður um að vera í Útilíf í Kringlunni á morgun frá 14-16. 20% afsláttur verður af EasyTone skóm sem algerlega hafa slegið í gegn hjá íslenskum konum. Í Útilíf, Kringlunni verður 20% afsláttur af EasyTone skóm. Vegleg gjöf frá Nivea fylgir öllum seldum EasyTone skóm. Einnig verður glaðningur frá Nivea fyrir allar sem máta EasyTone [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Hinn fullkomni stelpubíll?

car l

Fullkomin bíll að mati okkar á Bleikt á fallegum föstudegi! Hvað fáum við mörg „læk“ á það?  

Ritstjórn
18.5.2012

Hvernig á að opna vínflösku án upptakara: Myndband

vinflaska

Kannski sniðugasta og nytsamlegasta ráð sem þú munt nokkurn tíma læra!  

Ritstjórn
18.5.2012

Ef þú breytir ekki öryggisstillingunum þínum á Facebook…

privat l

…gæti þetta gerst!  

Ritstjórn
18.5.2012

Óður til brjóstagjafar: Myndband

brjostagjof

Flestar mæður þekkja raunir og ánægju brjóstagjafar af eigin raun. Hér er frábært lag sem samið er af L.A. Women sem er grínhópur frá Los Angeles og kallast það Life Givers. Stórskemmtilegt myndband!  

Ritstjórn
18.5.2012

Hvað stingur í stúf á þessum myndum?

odd fors

Reyndu nú: Hvað gastu margar réttar?  

Aðsendar greinar
18.5.2012

Svar við „Öfundsjúkar kærustur á djamminu“

ofund 2

Ég á kærasta og fer mjög oft með honum á djammið og oftar en ekki lendi ég í því að fullar stelpur reyna við hann fyrir framan nefið á mér. Ég treysti honum fullkomlega og veit vel að hann hefur engan áhuga en samt fer þetta virkilega í taugarnar á mér. Eins og lýst var [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Sniðugur skóskápur

skoskapur l

Við erum alltaf í vandræðum með skóna okkar. Hér er frábær leið til að geyma þá!  

Ritstjórn
18.5.2012

Hversu algengur er afmælisdagurinn þinn?

amm lil

Kíktu á þessa töflu. Frekar athyglisvert, ekki satt?  

Ritstjórn
18.5.2012

„Hey, manni – hvað er klukkan?“

saehestur lil

Frábær mynd sem náðist á Maui, Hawaii  

Nafnlaust
18.5.2012

Játning: Hann er tveimur árum yngri en ég

jat

Ég er 17 ára stelpa og á yndislegan strákavin sem ég treysti fyrir öllu. Við kynntumst í gegnum netið og erum búin að þekkjast í 3 mánuði. Við erum búin að upplifa margt og mikið saman. Hittumst alltaf fyrst með vinum en erum núna farin að hittast bara 2. En ég er farin að finna fyrir meiru en [...]

Ritstjórn
18.5.2012

Nýja forsetafrú Frakka er virkilega flott fyrirmynd

VT forsida

Valérie Trierweiler er kona nýkjörins forseta Frakka, François Hollande. Eftir að hafa lesið um hana á New York Times erum við þess fullvissar að franskar konur gætu ekki fengið betri fyrirmynd. Í fyrsta lagi heldur hún nafninu sínu, þ.e. tekur ekki eftirnafn mannsins síns. Hún er 47 ára gömul og hefur verið einn fremsti stjórnmálablaðamaður [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Einmitt frumsýningarkjóllinn sem við vorum að leita að!

kj forsida

Nei, við erum ekki að djóka – fyrirsætan Michaela Schaefer var í þessu dressi á frumsýningu kvikmyndarinnar Men In Black 3 í Berlín á dögunum. Afar sérstakur kjóll…og eftirminnilegur!  

Ágústa Arna
17.5.2012

Eurovision 2012 – Lögin sem keppa þann 24. maí

eurovision

Nú er Eurovision undirbúningurinn á fullu og keppendur komnir til Baku þar sem þeir æfa stíft og taka þátt í fjölmiðlafárinu í kringum keppnina. Ágústa Arna hefur velt lögunum mikið fyrir sér að undanförnu og hefur birt umfjöllun um 18 fyrstu lögin sem munu keppa ásamt Grétu Salóme og Jónsa þann 22. maí og nú [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Diskódrottningin Donna Summer látin

donna summer

Diskódrottningin Donna Summer er látin, 63 ára að aldri. Hún hafði barist við krabbamein. Samkvæmt slúðurvefnum TMZ hafði hún barist lengi við krabbameinið en hafði reynt að leyna því hversu veik hún var orðin. Hátindur Summer var á áttunda áratugnum þegar diskótíminn var í hámarki og átti hún lög eins og Last Dance,  Hot Stuff og [...]

Ritstjórn
17.5.2012

Stelpurnar í Júník voru að fá SJÚKLEGAR buxur!

budin buxur

Júník í Smáralind: Voru að fá buxur aftur sem ruku út á sínum tíma. Eftir langa bið eru þær komnar aftur og eru algerlega að slá í gegn! Þær eru með þvílíkt úrval af glænýjum vörum og er búðin ein sú heitasta í bænum í dag! BUXURNAR! BÚÐIN!