Glöggir facebook notendur hafa ef til vill ekki misst af myndbandinu af hinum svokallaða Lagarfljótsormi en það myndband gengur nú um netheima eins og eldur í sinu. Myndbandið tók Hjörtur Kerúlf og þykir viðfangsefnið skuggalega líkt stórum ormi á hreyfingu. Þetta myndband hefur ekki eingöngu fangað athygli íslenskra þjóðsögu aðdáenda heldur hafa amerískir fréttamenn tekið það upp á sína arma og birt frétt um íslenska orminn úr Lagarfljóti.
Hvað finnst Simma hinsvegar um þetta?
„Ég get bara staðfest þessa sjón.“ Segir Simmi. „Þetta er nákvæmlega eins og ég hef séð orminn. Nú þarf fólk að fara að trúa.“ Bætir hann svo við og hlær.




















