„Í Aserbaídsjan er verið að níðast á fátæku fólki til þess eins að þeir geti byggt höll undir Eurovision keppnina . Fólkið er hrakið frá heimilum sínum, skrúfað fyrir vatn, gas og rafmagn og hefur fólk jafnvel verið fangelsað fyrir að yfirgefa ekki heimili sín.“
Sigrún Magnúsdóttir er skráð fyrir undirskriftasöfnuninni og segir á síðunni að í ljósi meintra mannréttindabrota sem framin séu í Aserbaídsjan hafi mannréttindavinir hrundið af stað þessari söfnun til að skora á RÚV og Pál Magnússon að draga Ísland úr Eurovisionkeppninni í ár en á síðu söfnunarinnar stendur:
„Það er mikilvægt að við látum til okkar taka og látum þetta ekki viðgangast þegjandi og hljóðalaust. Við krefjumst þess að RÚV sniðgangi Eurovision og verði RÚV ekki við því vonumst við til þess að fólk sýni samstöðu og slökkvi á sjónvarpstækjum sínum þegar Eurovisionkeppnin verður sýnd (öll þrjú kvöldin!). Við borgum RÚV og við segjum NEI!“
Hægt er að skrifa undir söfnunina HÉR




















