Eiga tæknifrjóvganir að vera niðurgreiddar? Það finnst tæplega 2000 manns sem hafa skrifað undir áskorun til velferðarráðherra en tæknifrjóvganir kosta allt frá 380. þúsund til 450. þúsund króna. Sá kostnaður var niðurgreiddur af ríkinu að hluta til fyrir áramót. Nú hefur niðurgreiðslum verið hætt og því þarf par, sem ekki getur átt börn af sjálfsdáðum, að borga þetta úr eigin vasa.
Ófrjósemi hrjáir um 15% para á Íslandi og getur ferlið verið langt og strangt. Til eru dæmi þess að pör hafið reynt í nokkur ár, með hjálp glasa- og tæknifrjóvgana, án nokkurs árangurs. Ferlið getur því verið ansi kostnaðarsamt og er alls ekki á færi hvers sem er. Nú er hafinn undirskriftarsöfnun málinu til stuðnings og skora undirskrifendur á Guðbjart Hannesson, velferðarráðherra, að draga til baka þá ákvörðun að hætta niðurgreiðslum.
Hér er hægt að skrifa undir áskorunina!




















