Allar evrópskar konur eiga að hafa sama rétt til forvarna gegn leghálskrabbameini og berjast evrópusamtökin ECCA fyrir því.Leitarstöð Krabbameinsfélagsins hefur borist beiðni frá ECCA – European Cervical Cancer Associationum aðstoð við að safna undirskriftum á Íslandi fyrir „STOP Cervical Cancer Petition“ sem hvetur Evrópuþingið, framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og ríkisstjórnir allra landa í Evrópu til að veita öllum evrópskum konum þennan rétt.
Markmið ECCA er að ná einni milljón áskorana en þann fjölda þarf til að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins taki þetta mál á málefnaskrá sambandsins. Krabbameinsfélagið hvetur konur til að taka þátt í þessari áskorun með því að rita nafn sitt á
www.CervicalCancerPetition.eu
Konur geta einnig sýnt stuðning sinn með því að festa kaup á Vísdómsperlunni sem er auðkennismerki átaksverkefnisins en perlan fæst keypt hjá Krabbameinsfélaginu að Skógarhlíð.




















