Myndir þú vilja stjórna tölvunni þinni án þess að nota lyklaborð? Í gær tilkynnti framkvæmdastjóri Microsoft að þann 1. febrúar gætu notendur stýrt tölvunni sinni án þess að snerta lyklaborðið. Hér erum við að sjálfsögðu að tala um Kinect tæknina!
Kinecter í raun samhæfing tækninnar, hugans og líkamans. Microsoft á heiðurinn af tækninni en hún gerir notandanum mögulegt að gefa fyrirskipanir án þess að snerta eitt eða neitt heldur gefa hreyfingar og raddskipanir viðkomandi til kynna hvað hann ætlast fyrir.
Tölvugúrúar segjast sannfærðir um að með tilkomu þessarar tækni í almenn stýrikerfi muni tölvutæknin breytast svo um munar!
Steve Balmer, framkvæmdastjóri Microsoft gaf út í gær að fyrirtækið væri nú þegar í samstarfi við um 200 fyrirtæki um Kinect „öpp“ og engin takmörk væru fyrir því hvað þau innihalda, að því er tæknivefurinn Mashable greinir frá.
Búið ykkur undir tæknibyltingu!




















