Þegar kærasti nokkur ákvað í bræði sinni að ráðast á kærustuna með hamri steig óvæntur björgunaraðili inn í atburðarrásina. Stóri Dan hundur sem kærastan átti gat ekki hugsað sér að horfa á ódæðisverkið, stökk því á milli þeirra og tók við höggunum.
Maðurinn lét báða enda hamarsins dynja á hundinum og að árásinni lokinni fleygði hann þeim báðum út um glugga af annarri hæð.
Kærastan gat þó komið sér í skjól kvennaathvarfs en athvarfið ákvað að bjóða hundinn velkominn enda sagðist konan ekki geta hugsað sér að skilja bjargvætt sinn eftir, frekar svæfi hún í bílnum en að yfirgefa illa særðan hundinn.
Nú, ári síðar, heilsast báðum vel og hefur athvarfið opnað dyrnar fyrir konum, börnum og ferfættum bjargvættum.




















