Bærinn Júzcar á Suður-Spáni var málaður alveg blár til að passa fyrir Strumpana meðan verið var að taka kvikmynd um Strumpana upp. Ekki var meiningin að bærinn yrði blár að eilífu heldur átti að mála húsin hvít aftur þegar búið væri að taka myndina upp, að sögn Dagens Nyheter. En nú gefur ýmislegt til kynna að bærinn verði áfram blár þó að myndin hafi löngu verið frumsýnd í bíóum.

Blái liturinn hefur nefnilega sýnt sig virka vel fyrir búðirnar í bænum. Ferðamennirnir hafa flokkast í bæinn í fjöllunum, nokkra kílómetra norðvestan við strandborgina Marbella á Spáni. Þegar hugmyndin um að halda bænum bláum til framtíðar kom upp leist mörgum vel á hana og hvað var þá gert?

Jú, bæjarbúar hafa að sjálfsögðu gengið til atkvæða og miklum meirihluta þeirra líst bráðvel á hugmyndina. Það eru því allar líkur á því að bærinn þar sem Strumpamyndin var tekin upp verði áfram blár Strumpabær og laði að ferðafólk, þar á meðal Íslendinga, til bæjarins.




















