Elvar Ingi Helgason er tilnefndur til Dimmalimm verðlaunanna sem gefin eru fyrir bestu myndskreytingar í barnabókum. Elvar segir frá ástríðu sinni og verkefnum, en í dag er hann m.a. að teikna fyrir nýjan íslenskan tölvuleik.
„Þetta vilja börnin sjá“ er heiti á sýningu sem haldin verður sunnudaginn 29. janúar. Þar verða til sýnis myndir úr barnabókum sem komu út árið 2011 og verða Dimmalimm verðlaunin veitt fyrir bestu myndskreytinguna. Einn af þeim listamönnum sem á myndir á sýningunni og er tilnefndur til Dimmalimm verðlaunana er Elvar Ingi Helgason en hann er mjög spenntur fyrir þessu og hlakkar hann mikið til að taka þátt og vera með.
Hvenær byrjaðir þú að teikna?
Ég hef teiknað frá því ég var krakki, á leikskóla var ég t.d. að teikna He-man og Skeletor. Leikskólakennurunum varð svo bilt við þessum hryllingsteikningum að þeir tóku af mér litina. Ég var líka duglegur að teikna á öll borð í grunnskólanum, ræstitæknirinn kunni síðan ekki við að þrífa eitt borðið og teikningin fékk að standa óáreitt í dálítinn tíma. Kæmi mér ekkert á óvart ef borðið stæði þarna enn.
Hvaða myndir átt þú í keppninni?
Þetta eru myndir sem ég teiknaði fyrir barnabókina Geiturnar Þrjár. Höfundurinn hafði samband við mig í gegnum gamlan skólafélaga og kynnti mig fyrir bókinni. Ég hafði nú aldrei myndskreytt barnabók áður svo mér fannst þetta mjög spennandi og frábært tækifæri til þess að prófa eitthvað nýtt.
Hver er pælingin á bak við myndskeyringarnar?
Ég reyndi hafa geiturnar í líkingu við þessar íslensku geitur, þær voru fyrirmyndin og eru dálítið öðruvísi en þessar útlensku. Ég reyndi að hafa þetta sem íslenskast, t.d. var mikil vinna lögð í brúnna og ég reyndi að líkja eftir þessum týpísku íslensku sveitabrúm. Landslagið í myndunum er einnig frekar íslenskt, ég reyndi að nota fjöllin og grænu túninn. Kiðakið átti einnig að höfða til bæði til stráka og stelpna, ég vildi að bæði kynin gætu séð sig í persónunni.

Hvernig finnst þér að vera tilnefndur í þessa keppni?
Það að vera boðið þátttaka í svona samkeppni er auðvitað mjög skemmtilegt en ég er voðalega rólegur yfir þessu. Auðvitað væri gaman að vinna en ég tek þessu bara með stóískri ró. Ég er mjög spenntur að sjá hinar myndirnar á sunnudaginn og það verður gaman að fá frekari innsýn inn í þennan heim myndskreytinga.
Að hvaða verkefni ertu að vinna núna?
Ég er að teikna fyrir næstu geitabók en þar sem sögunni er breytt enn meira og ég er að teikna fyrir nýjan íslenskan tölvuleik sem á að koma út í sumar. Verkefnin eru ólík að mörgu leyti enn þó svipuð að því leytinu til að ég fæ nokkuð frjálsar hendur til að teikna og gera það sem mér dettur í hug, auðvitað innan skynsamlegra marka. Auðvitað eru ákveðnar persónur með sín persónueinkenni en ég ræð stílnum og hef því mikið listrænt frelsi.

Hvað tekur svo við í framhaldinu?
Vonandi tekur tölvuleikurinn alfarið við enda er það verkefni sem ég er mjög spenntur fyrir. Að teikna persónur og fígúrur fyrir ævintýraheim er mjög gaman, ímyndunaraflið fær alveg að ráða og möguleikarnir eru endalausir.
Sýningin er haldin í Gerðubergi og opnar húsið klukkan 14:00 næsta sunnudag.




















