Magnaðar myndir: Omar Ortiz málar þessar myndir sem þarf að grannskoða til að átta sig á að þetta eru ekki ljósmyndir heldur málverk. Ortiz er fæddur í Guadalajara í Mexíkó árið 1977 og býr hann þar í dag. Hann leggur ótrúlega áherslu á smáatriðin í málverkum sínum og í einfaldleika málverkanna liggur fegurðin.
Ortiz notar yfirleitt þrjá þætti: Hvítan bakgrunn, manneskju eða manneskjur og stílhreint efni eða mynstur sem birtist einhversstaðar á myndinni.
Flestir segja að erfiðast sé að mála manneskju á striga en það er greinilega ekki vandamálið í þessu tilfelli!
_________________________________________________________________________________________
Þökkum lesanda ábendinguna!




















