Hljómsveitin Dalton braust fram á sjónarviðið árið 2007 með lögum eins og „Halló heimur“ og Gæsalaginu“ sem voru á breiðskífunni „Ágætis dómar“ sem kom út árið 2009. Hljómsveitin hefur gefið sér gott orðspor fyrir rafmagnaða sviðsframkomu og almennt mikið stuð.
Þeir gáfu svo nýlega út lagið „Viltu þiggja minn koss“ sem landsmenn ættu að kannast við og hafa verið nokkuð iðnir við spilamennskuna að undanförnu en yfirleitt ókeypis inn á tónleika þeirra.
Hljómsveitin er samansett af Bödda (söngur) sem var tilnefndur til hlustendaverðlauna FM957 árið 2011, Danna (gítar) Gunnari Hilmarssyni ásamt Kidda Gallagher (bassi) og Hadda már (trommur og söngur)
Þessir ofurtöffarar munu spila á Hressó núna á laugardag klukkan 22:30 og vonast þeir til að sjá sem flesta.
__________________________________________________________________________________________
Viltu vita hvað er að gerast um helgina? Nýr vefur sem heitir Um helgina segir þér frá öllu því heitasta!

Ýttu á lógóið fyrir ofan!




















