Um daginn var ég í strætó og komst ekki hjá því að heyra samtal tveggja ungra stúlkna. Þær voru að tala um jólagjafir og önnur þeirra sagði hátt og skýrt: „Ég vona að hann gefi mér ekki eitthvað drasl bara, eins og margar litlar gjafir úr búð eins og megastore eða eitthvað. Ég yrði brjáluð!“ Ég hló innra með mér og hugsaði „Þessar eiga margt ólært um ástina og síðast en ekki síst jólin.“ Án þess að ég meini það illa þá get ég ekki trúað öðru.
Auðvitað er gaman að fá jólagjöf, eitthvað sem mann langar í eða hefur jafnvel skrifað á jólaóskalistann en snúast jólin um gjafir?
Nú til dags virðist svo vera, því miður og í sannleika sagt þá finnst mér það vera mjög sorglegt. Jólin eiga snúast um að fagna fæðingu Jesú, kærleika og frið, borða góðan mat með vinum og ættingjum. Og síðast en ekki síst, njóta þess! Við skulum muna það að það er fullt af fólki í heiminum sem er ekki svo heppið að geta haldið almennileg jól.
Ég ætla ekki alveg að draga ykkur niður aftur á bak en það er bara svo mikilvægt að minna fólk á hvað jólin snúast um. Sjálf hef ég gleymt því nokkrum sinnum. Ég get lofað þér því að þú finnur sannan jólaanda um leið og þú sérð hvað jólin snúast um. Hversu dýr gjöf er segir ekkert til um gæði hennar eða hversu góð hún er. Bestu gjafirnar eru þær sem sýna ást okkar til einhvers og oftar en ekki eru bestu gjafirnar ókeypis. Eins og þegar barn teiknar/málar mynd og gefur foreldrum sínum hana í jólagjöf.
Og mundu það að það er ekki hægt að kaupa ástina!
Gleðileg jól og farsælt komandi ár




















