Það er bara korter í jól og þar af leiðandi heyrast jólalög út um allt. Hvort sem það er í ræktinni, heima, í bílnum eða í verslunarmiðstöðvum. Fólk kemst ekki hjá því að heyra óminn sem gefur til kynna að jólin eru á næsta leyti.
Umfjöllunarefnið er alla jafna í jólalegri kantinum, það er að segja um frið, kærleika, Jesú, pakka, aðfangadagskvöld, þrif, ofát, Betlehem, jólastjörnuna, Grýlu og jólasveinana, jólaköttinn og já, jólafitubolluna. Ætli fólk hafi einhvern tíma velt raunverulegu innihaldi textanna fyrir sér? Og kannski miklu frekar af hverju sum lög eru jólalög þó svo að orðið jól komi kannski einu sinni fyrir í textanum.
Nóg hefur verið rifist um texta á borð við Hátíð í bæ sem þykir gera karlkyninu frekar hátt undir höfði. En á sama tíma má velta fyrir sér textum sem sungin eru mjög mikið á þessum tíma eins og Jólasveinar einn og átta þar sem sveinkarnir voru allt í einu bara níu en ekki þrettán af einhverjum ástæðum. Og já svo var einhver Andrés mættur í partýið sem vissi ekkert hvað hann var að gera þarna enda stóð hann utan gáttar og var á endanum færður tröllunum. En ekki hvað, það eru venjuleg örlög þeirra sem vita ekkert hvað þeir eru að gera!
Textinn við Jólasveinar ganga um gólf er líka undarlegur en þar segir „…upp á stól stendur mín kanna…” en hvaða kanna er þetta sem stendur upp á stól? Kanna með malti og appelsíni eða kaffikanna? Þetta syngja börn og fullorðnir eins og greitt sé fyrir á öllum jólaböllum!
En það eru tvö lög sem hafa valdið mér verulegum heilabrotum. Það eru lögin Hjálpum þeim og svo þetta fræga, fallega og ítalska lag, Ef ég nenni (sem er eitt af mínum uppáhalds).
Hjálpum þeim kom út árið 1985 og var gefið út til þess að safna fé fyrir bágstadda. Á þeim tíma var öllum helstu stjörnum níunda áratugarins safnað saman í anda Band Aid hópsins sem gaf út lagið Do they know it’s Christmas? árið áður. En öfugt við Band Aid hópinn var ekkert sem minnti á jólin í texta lagsins Hjálpum þeim. Fólk var minnt á það að muna eftir þeim sem minna mega sín enda er boðskapur lagsins virkilega fallegur. En hvar er orðið jól? Og hvers vegna er þetta fallega lag bara spilað í nóvember og desember en ekki í júlí? Það eru engar bjöllur, ekki minnst á snjó og orðið jól heyrist hvergi! Hmm… Spurning um að hringja á Rás 2 í útilegu næsta sumar og biðja um Hjálpum þeim. Sá sem mun taka við símtalinu mun sennilega missa hökuna niður í borðið. En það er ekkert sem gefur það til kynna að þetta lag eigi að vera spilað í desember en ekki í júlí. Meina ekki bið ég um White Christmas á þeim tímapunkti!
Svo er það Ef ég nenni. Þetta er lag sem valdið hefur mörgum heilabrotum. Og já þetta er eitt mest spilaða jólalagið fyrir hver einustu jól en samt sem áður er ekki minnst á orðið jól fyrr en 3 mínútur og 32 sekúndur eru búnar að laginu. Ókei það er alveg hægt að geta sér það til að hann sé að syngja um það að hann eigi ekki fyrir jólagjöf (komum betur að innihaldi textans á eftir) handa konunni í lífi sínu. En hann getur allt eins verið að syngja um það að hann eigi ekki fyrir afmælisgjöf, sumargjöf nú eða hverri annarri tækisfærisgjöf. Sá sem hlustar á lagið fær ekki að vita um það hvers lags gjöf ræðir fyrr en þrjár og hálf mínúta er búin af laginu!
Ég hef aldrei almennilega skilið þennan texta. Það er eins og hann „nenni“ ekki gefa ástinni sinni gjöf (já einmitt voða rómantískt!) en kannski á hann ekki fyrir henni. Svo allt í einu er hann í vafa með þetta allt saman því að hann er ekki viss um það að hún muni vilja hann – er hægt að hafa þetta aðeins ruglingslegra? Er ekki bara hægt að fá þetta á hreint í eitt skipti fyrir öll? Nennti hann ekki að gefa henni gjöf og hann þar af leiðandi sjálfselskur asni, þénaði hann ekki nóg þannig að hann gat ekki gefið henni gjöfina dýru eða hreinlega vildi hún hann ekki? Þetta þarf ekki að vera svona flókið!




















