Úr 120 kílóum í 67: Myndaþáttur Óla Harðar og Karenar Önnu
25.05.2011 Ritstjórn

Karen Anna Guðmundsdóttir var 120 kíló fyrir nokkrum árum en í dag er hún 67 kíló. Þessi hressa þrítuga stelpa sagði Bleikt frá því hvernig hún náði þessum gríðargóða árangri og hvernig hún heldur sér í formi.

Á myndunum sem Óli Harðar tók af Karen Önnu, sér maður sportlega og hrausta stelpu. Hún er í góðu formi í dag, lifir heilbrigðu lífi, er lífsglöð og jákvæð. Karen Anna átti barn árið 2005 og þyngdist töluvert á meðgöngunni:

„Ég datt algjörlega í nammið og át kannski tvo m&m poka á dag. Í lok ársins fékk ég hreinlega ógeð. Ég horfði í spegilinn og var hreint út sagt ekki ánægð með það sem ég sá. Þá ákvað ég að taka mig taki.“

„Gat ekki hugsað mér að fara í ræktina til að byrja með“

Oft er sagt að góðir hlutir gerist hægt. Karen Anna áttaði sig strax á því að skyndilausnir væru ekki viðeigandi í hennar tilviki. Hún byrjaði að hreyfa sig árið 2006 og hefur ekki stoppað síðan. Hvert var fyrsta skrefið?

„Mamma mín hefur verið ómetanlegur stuðningur. Það var hennar tillaga að fá skíðatæki heim til mín. Ég gat ekki hugsað mér að fara beint í ræktina. Þess vegna notaði ég skíðavélina um það bil tvisvar á dag þar til ég hafði náð af mér 10-15 kílóum. Þá treysti ég mér í ræktina. Í dag æfi ég 7-8 sinnum í viku.“

Karen Anna er ekki fanatísk hvað mat varðar en hún vandar vel hvað hún lætur ofan í sig. „Ég borða alveg nammi þó ég borði ekki mikið af því. Einu sinni í viku er nammidagur. Fastur liður er að fá sér Vesturbæjarís á laugardögum og svo fæ ég mér kannski eitthvað úr hnetubarnum. Það er nammið mitt.“

Hér er myn sem tekin var fyrir lífsstílsbreytinguna og mynd frá síðustu viku.

Karen samsett

Langhlaup – árangur til frambúðar

Ef fólk breytir algjörlega um lífsstíl er minni hætta á að það fari aftur í gamla horfið eða gamla farið: „Ég vildi gera þetta hægt og rólega til að fá kílóin ekki á mig aftur. Það er allt hægt ef maður vill það sjálfur. Þá nær maður árangri.“

Áður notaði Karen Anna buxur í stærð 18-20 en í dag er hún í buxnastærð 10-12. „Það er rosalega gaman að geta verslað hvar sem er. Ég man vel að það var ekkert hægt að fá svona stór númer í hvaða búðum sem er.“

Karen Anna vonar að saga hennar geti verið öðrum hvatning. Margir eru í þeim sporum sem hún var sjálf árið 2006. Hvatning hennar til þeirra er: „Ef þú vilt ná árangri þá getur þú það. Það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi.“

Förðun: Tinna Dahl Christiansen

Myndataka: Óli Harðar

Ritstjórn
23.5.2012

Brúðarlína UGG: Myndir

ugg forsida

Við erum ekki að búa þetta til: Nú getur þú gift þig í UGG skóm. Ný lína frá UGGs í Ástralíu auglýsir að nú verði brúðkaupið kósý…            

Ritstjórn
23.5.2012

Setti hún HVAÐ í kaffið hans?

kaffid

Hvað er það hryllilegasta sem hægt er að fá í kaffið sitt? Óánægð 24 ára gömul kona í Singapore, Jumiah að nafni, sló sennilega eitthvert met þegar hún varð ósátt við yfirmann sinn. Hún setti tíðablóð – já, tíðablóð – í kaffið hjá honum. Jumiah hafði unnið fyrir hann í heilt ár sem húshjálp og [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Byltingarkennd háreyðing: Epilsoft hanskinn

Epilsoft má nota á öll líkamshár og hentar öllum húðgerðum.

Alveg magnaður! Fólk í Evrópu þekkir Epilsoft hanskann vel en hann er nýjung hér á landi. Hanskinn sér um að fjarlægja öll líkamshár og einnig dauðar húðfrumur og gerir hann húðina silkimjúka.     Engin hætta er á klístruðu vaxi, kremum eða raksápu. Epilsoft hanskinn er til bæði fyrir karla og konur. Mjög auðvelt er [...]

Ritstjórn
23.5.2012

„Hoppa í polla! Hopp…“

hopp

Vissulega gaman hjá þessum þar til…  

Aðsendar greinar
23.5.2012

„Ég þrái bara að geta borgað reikningana mína“

reikn

Í fimm ár hef ég ekki getað farið til tannlæknis (búin að vera með tannpínu í tvö ár), ég get aldrei keypt mér föt en hér sit ég í sófanum heima hjá mér og sauma götin á buxunum mínum. Ég geri aldrei neitt með manninum mínum sem ég þrái svo heitt, ég hef ekki lengur [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Íslensk fyrirsæta í Financial Times: Myndir

edda l

Edda Óskars hjá Eskimo models fór í myndatöku í Afríku og birtist þátturinn í Financial Times. Flottar myndir!  

Ritstjórn
23.5.2012

Stjörnurnar og áhættuleikararnir þeirra

áhættuleikararforsida

Ótrúlegt, sumir áhættuleikaranna eru ekki einu sinni líkir stjörnunum en aðrir eru lifandi spegilmynd þeirra.                      

Ritstjórn
23.5.2012

10 ráð til að verða hamingjusamara foreldri

fam forsida

Það er ýmislegt á foreldra lagt. Stundum eigum við það til að gera of mikið úr hlutunum. Hér eru tíu atriði sem geta hjálpað okkur að verða hamingjusamara foreldri….sem þýðir líka að börnunum okkar mun líða betur!   Þú getur ekki haft stjórn á ÖLLU. Það er stundum í lagi að viðurkenna að þú getur [...]

Nafnlaust
23.5.2012

Játning: Taggalicius ást

jatning

Ég var í sambandi í fjögur ár og þar á undan var ég búin að deita mestu skíthæla landsins að mínu mati. Þeir notuðu mig og komu illa fram við mig en það var þegar ég var yngri. Ég hélt þetta myndi ekki koma fyrir aftur enda yfir 25 ára. Ég var í mjög traustu [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Sjóðheit prófílmynd?

se lil

Ekki kannski alveg eins og hún hafði hugsað sér hana….  

Ritstjórn
23.5.2012

Hver ætli ráði á þessu heimili?

raedur l

Þú þarft bara að líta einu sinni á myndina til að sjá það…!  

Ritstjórn
23.5.2012

Rúmfræði: Level 900

rumfr lil

Hvernig…? Bara – HVERNIG?  

Ritstjórn
23.5.2012

Mörgæsaungi vs maður

mörgæs

Hversu mikið krútt getur maður verið? Þessi litli mörgæsaungi var ekkert hræddur við að ráðast á manninn og setjast hreinlega á andlitið á honum.

Sigurveig
23.5.2012

Síðbúinn „mæðradagsbröns”

bröns

Snilldin ein frá matgæðingnum Sigurveigu Káradóttur!   Pönnuklessur: 200 gr spelt 25 gr hveitikím 25 gr hveitiklíð 2 tsk lyftiduft 50 gr hunang 200 gr eplamauk 2 egg 2 msk kókosolía – brædd á pönnu ( og svo meiri kókosolía til að steikja úr ) Þurrefnin sett saman í skál og restinni síðan blandað saman [...]

Ritstjórn
23.5.2012

Uppfærðu Angry Birds

angrybirdsforsida

Það hafa flestir spilað leikinn sem en fæstir láta sig dreyma um að falla niður með þessum reiðu fuglum eða þjóta á meðal þeirra í hringekjum. Nú hafa leikjahönnuðir Angry Birds hinsvegar uppfært leikinn og fært hann inn í raunveruleikann með tilkomu skemmtigarðar sem er að sjálfsögðu tileinkaður fuglunum og óvinum þeirra. Skemmtigarðinn er að [...]