Á morgun fagna elskendur um allan heim degi ástarinnar. Blómasalar anna vart eftirspurn, börn, unglingar og fullorðnir skiptast á kortum og kærleikurinn ríkir víðast hvar sem þessi dagur er haldinn hátíðlegur. Íslenskum aðdáendum þessa dags fjölgar á hverju ári en hvað vitum við í raun um dag þennan dag ástarinnar? Bleikt tók saman nokkrar staðreyndir og hjátrúr varðandi Valentínusardaginn.
Koss í morgunsárið: Það er talið boða gæfu að vera vakinn með kossi þennan dag.
Rómverska gyðjan:Dagurinn á rætur sínar að rekja til Rómaveldis hins forna en 14. febrúar er upphaflega dagur rómversku gyðjunnar Júnó, verndara Rómaveldis og gyðju hjónabanda.
Gæludýrin: Meira en 9 milljónir manna gefa gæludýrunum sínum Valentínusargjafir.
Þjóðsögnin:Sagan segir að ógiftar konur geti fengið upplýsingar um framtíðareiginmanninn með því að horfa á fugla þennan dag. Sjái hún þröst giftist hún sjómanni en sé þaðþistilfinka verður mannsefnið hennar ríkt, ugla stendur fyrir piprun, spörfugl er vísbending um að eiginmaðurinn verði fátækur og sjái konan fleiri en eina dúfu verður húnhamingjusöm í hjónabandinu.
Kortin: Engin starfstétt fær eins mikið af Valentínusarkortum og kennarar.
Rósin: Rauðar rósir eru tákn ástarinnar og eru yfir 50 milljónir þeirra gefnar á þessum eina degi.
Valentínus: Flestir vita að Valentínusardagurinn er haldinn til heiðurs dýrlingnum Valentínusi. Það sem færri vita er að það voru þrír dýrlingar sem báru nafnið Valentínus og er dagurinn er tileinkaður tveimur þeirra.
Rómeó og Júlía: Borgin Veróna á Ítalíu fær send yfir 1000 bréf stíluð á Júlíu hans Rómeós hvern Valentínusardag.
Eplið: Skeri kona epli í tvennt á Valentínusardaginn þá á hún að geta fundið út hversu mörg börn hún muni eignast með því að telja steinanna í miðju eplinu.
Björn eða Jón?: Sumir telja að fyrsta karlmannsnafnið sem kona lesi þennan dag mun verða nafnið á framtíðar eiginmanni hennar.




















