Já! Virðist vera svarið við þeirri spurningu en nýjar rannsóknir sýna að 40% para sem hafa verið gift lengur en 10 ár séu enn jafn ástfangin og þegar ástarævintýrið hófst.
Bandarísku háskólarnir Stony Brook University og Harvey Mudd College stóðu fyrir rannsókninni en þeir lögðu spurningarlista fyrir 274 amerísk pör. Þáttakenndur voru m.a. beðnir um að svara því hversu heitt þeir elskuðu maka sinn en valmöguleikarnir voru allt frá því að segjast ekki elska maka sinn neitt yfir í að vera mjög ástfangin af makanum.
Rannsóknin sýndi einnig að þeir einstaklingar sem sögðust vera mjög ástfangnir áttu margt sameiginlegt en það fór alfarið eftir kyni. T.d. vildu mjög ástfangnir karlmenn stöðugt vita hvar betri helmingurinn var en konurnar ástföngnu lögðu ríka áheyrslu á áhugamál sem ekki tengdust sambandinu.
Sérfræðingar segja að það sé þó ekki nóg að sinna áhugamálum sínum og vita alltaf hvar hinn einstaklingur er heldur þurfa pörin að sína hvort öðru ástúð, tillitssemi, taka þátt í mismunandi og krefjandi hultum saman, hugsa jákvætt til hvors annars og taka þá ákvörðun að vera hamingjusöm saman.




















