Það virðist orðið árlegur viðburður að fataverslunin Desigual opni útsölu sína með því að bjóða viðskiptavinum að mæta hálfnaktir í búðina og fara heim fullklæddir. Fólk sem mætir á nærfötunum fær semsagt betri kjör en ella. Hér eru myndir af útsölunum í Lyon, Frakklandi, Sevilla á Spáni og í Prag, Tékklandi.




















