Loksins gerist það! Þann 29.febrúar næstkomandi mun Victoria‘s Secret opna í fríhöfninni. Verslunin verður ein sú glæsilegasta en ljósmyndir af Victoria‘s Secret fyrirsætunum munu prýða verslunina og undirstrika þar með kynþokkann sem keðjan er fræg fyrir.
Viðskiptavinum fríhafnarinnar gefst kostur á að versla allt það helsta frá undirfatarisanum eins og t.d. ilmvötnin Bombshell og VS Angel og verður þeim einnig boðið upp á sérstakt úrval af nærbuxum, bolum, töskum, leðurvörum og öðrum dásamlegum fylgihlutum frá Victoria‘s Secret.
Fríhöfnin ætlar ekki aðeins að bjóða ferðamönnum upp á að versla í þessari frægu búð heldur er einnig hægt að panta þjónustu þeirra í gegnum vefinn og sækja vöruna þegar komið er á flugvöllinn.




















