Við erum þrjár stelpur úr Reykjavík fæddar árið 1997. Ein okkar er gítarleikari, hin hljómborðsleikari og svo er líka ein söngkona. Allar kunnum við einnig á önnur hljóðfæri.
Okkur langar rosalega til að stofna hljómsveit en okkur vantar fleiri meðlimi, allavega bassaleikara, trommuleikara og annan gítarleikara. Við hlustum mikið á tónlist, t.d Nirvana, Hole, Foster The People, Pink Floyd, Coldplay, Muse, Two Door Cinema Club og margt fleira. Ef þig langar til að vera með, kíktu þá á þessa skilmála:
- Kunna vel á hljóðfærið þitt.
- Hafa aðgang að hljóðfæri.
- Gott ef hljóðfæraleikarinn kynni bæði hljóma og nótur.
- Vera virkilega til í þetta og mæta á æfingar.
Ef þú hefur enn áhuga, sendu okkur endilega tölvupóst á:hljomsveitarumsokn@gmail.com




















