Fyrir stundu var tilkynnt um andlát söngkonunnar Whitney Houston en hún var 48 ára að aldri. Hún hafði lengi barist við eiturlyfjafíkn en dánarorsök er ókunn.
Kynningarfulltrúinn Kristen Foster tilkynnti þetta fyrir stundu. Poppdrottningin var á hátindi ferils síns milli 1980-1990 þegar hún átti marga smelli og var með söluhæstu listamönnum heims. Þekktustu lög Whitney Houston voruHow Will I Know,Saving All My Love for YouogI Will Always Love You. Hún vann mörg Grammyverðlaun og lék í kvikmyndum – þekktust var hún fyrir hlutverk sitt í The Bodyguard.

Myndir teknar af Houston fyrir þremur dögum þar sem hún kom fram í R&B Grammy partý í Hollywood
Eiturlyfjafíkn tók þó völd yfir lífi hennar og játaði hún að nota eiturlyf á borð við kannabisefni, kókaín og ýmsar pillur. Houston sagði: „Stærsti djöfullinn er ég sjálf. Ég er annaðhvort minn besti vinur eða stærsti
óvinur.“Hjónaband hennar og Bobby Brown stormasamt. Undir lokin var hún hætt að koma fram á tónleikum og rödd hennar var ekki það sem áður var.
Söngkonan fannst rænulaus á hótelherbergi á Beverly Hilton af starfsmanni hennar. Sjúkraliðar voru kallaðir til sem reyndu að framkvæma hjartahnoð en það virkaði ekki. Hún var úrskurðuð látin kl. 15.55, samkvæmt TMZ. Whitney ætlaði að fara í samkvæmi tilClive Davisá sama hóteli og hún gisti á. TMZ segir einnig hafi hún talað við frænku sína Dionne Warwick og móður, Cissy Houston rétt áður en hún dó og ekkert virtist vera að.
Rannsókn hefur verið hleypt af stokkunum en ólíklegt er talið að dauða hennar hafi borið að með grunsamlegum hætti.
(Uppfært 10:00 12.2.2012)
Blessuð sé minning frábærrar söngkonu.




















