Yrja: „Líkamsrækt er besta meðalið.“
22.02.2012 Heiðrún Finnsdóttir

Einkaþjálfari, ketilbjölluþjálfari og mamma. Þessi þrjú orð má nota til þess að lýsa Yrju Dögg Kristjánsdóttur, 25 ára skvísu úr Mosfellsbænum. Yrja hefur stundað íþróttir frá 5 ára aldri, verið bæði í fimleikum og frjálsum íþróttum en þegar hún varð 18 ára varð hún að hætta vegna meiðsla.

Hún lét það þó ekki stoppa sig heldur hellti hún sér út í einkaþjálfaranám og lagði áherslu á ketilbjöllur. Yrja átti gullfallega stelpu fyrir 14. mánuðum síðan og fékk litla daman nafnið Viktoría Nansý. Yrja segir okkur aðeins frá ketilbjöllunum og hvernig henni gekk að halda sér í formi á meðgöngunni.

Hvað er Ketilbjalla?

„Ketilbjalla er kúlulaga lóð með handfangi sem er ekki ósvipað katli í útliti. Þetta er rússnesk æfingatækni sem þróaðist í gegnum aldirnar en upphaflega voru lóðin notuð til að vigta varning á mörkuðum. Það sem er svo heillandi við bjöllurnar er að þær gefa hagnýtan styrk, þú einangrar aldrei vöðva og allur líkaminn fær að taka á því á einni æfingu. Þær eru skemmtilegar og það er auðvelt að gleyma sér á æfingum því þetta tekur á og maður þarf að vanda sig.

Maður getur líka tekið hörku æfingu með einni bjöllu á einum fermetra, hvar og hvenær sem er. Þetta þarf ekki að vera flókið. Það sem einnig heillar er að þú nærð í alla vöðva líkamans. Þetta er mikil samhæfing sem krefst oft jafnvægis sem þýðir meiri virkni í stoðkerfinu. Þær styrkja og tóna alla vöðva líkamans og þá sérstaklega axlir, neðra bak og kviðvöðva.

Rétt líkamsbeiting er alltaf mikilvæg, í hverju sem er. Í ketilbjöllum er hún sérstaklega mikilvæg, það á enginn að komast upp með að beita sér vitlaust. Ég er að kenna ketilbjöllunámskeið í Heilsuræktinni hér á Akureyri og passa að allir beiti sér rétt.“

yrjabjalla2

Yrja með ketilbjöllurnar

Geta allir notað Ketilbjöllur?

„Það geta langflestir verið í bjöllunum, Maður velur sínar þyngdir og fer á sínum hraða. Auðvitað eru einhverjir sem eiga við einhver vandamál að stríða (axlir, bak) en þeir þurfa að byggja sig hægt og rólega upp í þessu eins og öðru.

Ég æfi mikið með bjöllunum en einnig með eigin líkamsþyngd, upphífingar, hopp, armbeygjur og fleira. Ég nota stangir, bolta, teygjur og allskonar aukahluti. Eitthvað sem ég hef ekki snert lengi eru handlóð.“

Hvenær fórstu í einkaþjálfaranámið?

„Ég hóf nám haustið 2007 og útskrifaðist sem ÍAK einkaþjálfari vorið 2008. Ég fór á fullt að þjálfa og er búin að vera í kringum hreyfingu og þjálfun síðan. Ég stefni auðvitað á meira nám en það hefur ekkert heillað mig nægilega vel ennþá, mig langar ekki í íþróttafræðina og sjúkraþjálfarinn heillar mig ekki nógu vel. Mig vantar eitthvað annað sem ég veit ekki hvað er.“

Hvernig byrjar hefðbundin dagur hjá þér?

„Ég byrja daginn á hressandi berja-smoothie eða hafragraut, vítamínum, vatni og smá kaffi. Ég er ekki endilega nammigrís en ég lifi ekki daginn af án þess að fá mér súkkulaði. Ég reyni þá að hafa það í hollari kantinum, 70% súkkulaði, hrásúkkulaði eða bara eitthvað sem ég kemst í.“

Yrjabjalla

Yrja er í hörkuformi


Hvernig gekk að hreyfa sig á meðgöngunni?

„Ég hreyfði mig mikið á meðgöngunni. Bæði vegna vinnunnar en ég þjálfaði ketilbjöllur og svo æfði ég sjálf 3x í viku, og fór í klukkutíma göngutúra 2x í viku. Ég var í mjög flottu og góðu formi alla meðgönguna og átti auðvelt með að hreyfa mig, en það kom svolítið í bakið á mér í fæðingunni.

Ég var ótrúlega þakklát fyrir að hafa ekki fengið í bakið eða grindina því hreyfing er eitthvað sem heldur geðheilsunni hjá mér í lagi.“

Hvað varstu lengi að koma þér í samt form?

„Ég var komin í fyrra horf, útlitslega séð, á viku til 10 dögum eftir fæðingu. Það var magnað. En auðvitað tekur mun lengri tíma að jafna sig eftir fæðingu. Ég fór hægt af stað í æfingum og komst ekki aftur í gott form fyrr en rútínan á daglegu lífi fór af stað aftur, kannski 6 mánuðum eftir.

Annars æfði ég heima í stofu á meðan stelpan svaf. Hitaði upp með sippi og tók svo á því með bjöllunum. Einnig var ég dugleg að fara í göngutúra með vagninn. Hreyfing er mér mjög mikilvæg. Ég hef alltaf átt við kvíðavandamál að stríða og það er engin klisja að líkamsrækt er besta meðalið.“

Hvernig líkar þér móðurhlutverkið?


Móðurhlutverkið er alveg jafn erfitt og það er dásamlega yndislegt. Dóttir mín er það besta sem hefur komið fyrir mig. Það er ólýsanleg tilfinning að eignast barn.“

Ritstjórn
21.5.2012

Grínið varð dauðans alvara: Settu barnið í þvottavél sem fór í gang

tvottavel barn forsida

Foreldrarnir sem sjást á myndbandinu hugsuðu ekki út í afleiðingar þess að setja barnið í þvottavél í þvottahúsi. Faðir barnsins setur það inn en gætir ekki að því að þvottavélin læsist sjálfkrafa og fer hún í gang með barnið inn í. Magnþrungnar sekúndur líða eins og sjá má. Vert er að taka það fram að [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Hin 12 ára Ásta Petrea syngur Halelujah: Myndband

haleluja

Ótrúlega góð og einungis 12 ára gömul! Ásta Petrea syngur hér þetta fallega lag, Halelujah  

Ritstjórn
21.5.2012

Hvar verður barnið þitt í sumar? Námskeið fyrir bráðger börn

genius

Ad Astra er lítið fyrirtæki sem hefur áhuga á að efla menntun á Íslandi. Þau leggja sig fram við að koma til móts við bráðger og námsfús börn. Frá árinu 2007 hafa verið haldin námskeið fyrir þessi börn en þá á vorin og haustin. Núna eru þau að fara af stað með nýtt og spennandi [...]

Ritstjórn
21.5.2012

28 ára maður lét lífið undir lyftingalóðum

lyftingalod

Chris Bailey fannst látinn í bílskúrnum heima hjá sér eftir að hafa lyft of þungum lóðum einn síns liðs. Bailey hafði keypt bekkinn fyrir nokkrum vikum til að spara pening og þurfa ekki að kaupa sér kort í líkamsræktarsal.     Daily Mail greinir frá því að síðast hafi sést til Bailey á leið inn [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Magnaður brúðkaupsdans: Myndband

brudkaupsdans

Bíddu eftir því….! Æðislegt  

Ritstjórn
21.5.2012

Anchorman 2 á leiðinni: Myndband

ancorman

Á leiðinni er ný mynd með Will Ferrel þar sem hann fer væntanlega á kostum sem fréttamaðurinn Ron Burgundy. Snilld!  

Aðsendar greinar
21.5.2012

Við viljum að áfengisaldurinn verði lækkaður

afnegi

Neysla og sala á áfengi hefur verið leyfileg á Íslandi síðan á síðustu öld. Árið 1998 tóku í gildi ný áfengislög. Samkvæmt þeim er óheimilt að selja eða veita þeim áfengi sem ekki hefur náð 20 ára aldri. Við erum fjórar stelpur á fyrsta ári í framhaldsskóla og við viljum að þessi lög verði endurskoðuð [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Kastað til bata: Jóhanna segir frá rúllettunni við krabbameinið

johanna krabbamein

Ég er ein af þessum konum sem ná fertugsaldri og fá heimsent bréf um að fara  í 40ára brjóstamyndatöku hjá Krabbameinsfélaginu. Grunlaus með öllu mæti ég niður í Skógarhlíð í myndatöku og fannst ég nú lítið hafa að gera þarna niðureftir. En stuttu seinna er hringt og ég beðin að koma í nánari skoðun þar [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Kjörís Beibís – Auglýsingar frá aðdáendum Kjöríss

kjorisforsida

Guðni Reynir Þorbjörnsson og Bjarki Þór Guðmundsson eru miklir aðdáendur Kjöríss, í raun eru þeir svo miklir aðdáendur að þeir hafa opnað Facebooksíðu tileinkaða ísnum og þar birta þeir nýja auglýsingu fyrir ísinn á hverjum fimmtudegi. Framtakið hefur fengið góð viðbrögð og vinirnir áræddu því að ganga enn lengra og sömdu nýjan texta við lagið [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Óheppileg staðsetning

stadsetn lil

…hvernig sem á það er litið!!  

Nafnlaust
21.5.2012

Játning: Hvað með dónalegt kassastarfsfólk?

waiting

Eftir að hafa lesið nokkrar játningar frá fyrrverandi (eða núverandi) kassastarfsfólki, um hversu ómögulegt fólk yfir höfuð er og hversu mikið dónaskapurinn fer með brostin hjörtu þeirra, þá gat ég nú ekki annað en komið með hinn pólinn á þetta… þ.e. kassastarfsfólk sem er með dónaskap. Dónaskapur þarf ekki að einskorðast við að orðum sé [...]

Ritstjórn
21.5.2012

Djúsí svefn!

djusi lil

Væri maður ekki sísvangur í þessu rúmi?  

Ritstjórn
21.5.2012

Hvað sérðu á laufblaðinu?

camo lil

Sérðu það…?     Þessi lirfa verður í raun að fiðrildi. Náttúran er ótrúlega mögnuð!  

Ritstjórn
21.5.2012

Misheppnaðar brúðkaupsmyndir

giftingforsida

Nei hættu nú alveg… Þessar brúðkaupsmyndir eru hver annarri verri, hvað var fólkið að hugsa?                      

Ritstjórn
21.5.2012

Bláa lónið á Galapagoseyjum

galapagos lil

Ah, þeirra lítur svona út!  

Ritstjórn
21.5.2012

Kíkt á nígerísk brúðkaup: 400 gestir eru ekki neitt!

nig fors

Gestalistinn telur oft 2000 manns! Nígerísk brúðkaup eru að verða ein stærsta framleiðsla þessa afríkuríkis. Brúðkaupin eru litrík, hugmyndarík og mikið er um að vera. Yemi Osunkoya er brúðarkjólahönnuður og það er meira en nóg að gera hjá honum, samkvæmt CNN. „400 gestir í einu brúðkaupi telst ekki mikið. Því fleira fólk sem mætir, því [...]